144. löggjafarþing — 141. fundur,  1. júlí 2015.

athugun á hagkvæmni lestarsamgangna.

101. mál
[11:05]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef einmitt verið að kalla eftir því varðandi Reykjavíkurflugvöll að fulltrúar alls landsins fái að taka ákvörðun um það hvort Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni eða ekki. Ég hef heyrt því fleygt að píratar væru til í að fara með málið í þjóðaratkvæðagreiðslu, en ég vil þó benda á að þeir taka þátt í því hörðum höndum innan borgarstjórnarmeirihlutans að farga því. Þetta snýst ekki um landsbyggð eða höfuðborg, þetta er bara spurningin um hvort ríkið eigi að standa straum af uppbyggingu almenningssamgangna innan einstakra sveitarfélaga. Það tíðkast ekki, hefur ekki tíðkast hér í áratugi. Ég nefndi að vísu þá einu undantekningu sem við höfum, þ.e. almenningssamgöngurnar. Það var gert með skilyrði að ekki yrði farið í stórframkvæmdir í tíu ár. Það var þannig. Ríkið rekur ekki eða greiðir fyrir fríar strætóferðir á Akureyri. Það er Akureyrarbær sem stendur straum af því, ekki allir landsmenn. Ég velti upp þeirri spurningu og spyr líka hv. þingmann vegna þess að ég veit að hann, öðrum fremur hér hef ég á tilfinningunni, vill vanda vinnubrögðin, hvort það væri ekki rétt að sveitarfélögin sjálf mundu þróa þessar hugmyndir betur áfram. Ég skil þetta ekki öðruvísi en svo að það sé eingöngu verið að stíga allra fyrstu skrefin og það verði að liggja fyrir á einhvern hátt hvernig þetta léttlestakerfi er hugsað, hvar það á að koma, af hvaða stærðargráðu, hvort það á að koma algjörlega í staðinn fyrir strætó eða að hluta til. Mér skilst að það eigi að koma eingöngu að hluta til í stað strætó. Einhvers staðar heyrði ég því fleygt að það ætti eingöngu að koma að þessum stærstu stofnæðum.

Þessir hlutir verða að liggja fyrir áður en ég get samþykkt það fyrir mitt leyti að ríkið fari af stað með hagkvæmniathugun sem á að mínu mati miklu fremur heima hjá sveitarfélagi sem hefur jú kallað ansi sterkt eftir (Forseti hringir.) því að sjálfsákvörðunarréttur þess sé heilagur og að hann verði virtur öðru fremur.