144. löggjafarþing — 141. fundur,  1. júlí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[12:56]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég fagna því auðvitað sérstaklega að ófriðartillaga meiri hluta atvinnuveganefndar undir forustu hv. þm. Jóns Gunnarssonar hefur verið brotin á bak aftur. Það er þó nokkur áfangasigur í umhverfisverndarbaráttunni í landinu. Hv. þingmaður ber sig að vísu mannalega þrátt fyrir niðurlagið og boðar áframhaldandi stríð svona í framhjáhlaupi þess að hann atar aðra stjórnmálamenn auri og telur sig þess umkominn. Það er hans vandamál.

Varðandi tillögu um að færa Hvammsvirkjun í nýtingarflokk þá er sá augljósi ágalli á því að þar er verið að leggja til röðun á einni virkjun, einum kosti. Það væri lágmark að Hvammsvirkjun biði áfram með öðrum virkjunarkostum í neðri hluta Þjórsár og almennt og fengi svo röðun sem hluti af stærra mengi.

Þegar kemur að afstöðu til virkjana í neðri hluta Þjórsár þá er sá sem hér stendur þeirrar skoðunar að þær séu ekki réttlætanlegar og verði aldrei réttlætanlegar. Einn stærsti villti laxastofn í Norður-Atlantshafi, sjóbirtingur, og fleiri fiskar (Forseti hringir.) og lífríkið allt og umhverfið eiga að njóta vafans. (Forseti hringir.)

Ég er því algjörlega andvígur tillögunni bæði af formlegum ástæðum (Forseti hringir.) og efnislegum.