144. löggjafarþing — 141. fundur,  1. júlí 2015.

veiðigjöld.

692. mál
[13:07]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Enn og aftur hefst söngurinn hjá hv. formanni Samfylkingarinnar um að verið sé að afsala sér tekjum, hægt sé að pína atvinnulífið enn meira og nota ætti þá peninga til að byggja upp öflugra heilbrigðiskerfi og öflugra velferðarkerfi. Við erum að því, samhliða því að við lækkum álögur á fólk í landinu, samhliða því að við lækkum álögur á atvinnulífið í landinu erum við að setja meiri peninga í heilbrigðiskerfið en nokkru sinni hefur verið gert. Og við erum að styrkja velferðarkerfið og munum halda áfram á þeirri braut.

Það sem er athyglisvert í þessari umræðu er: Hvar eru tillögur þessara flokka um hækkun veiðigjalda? Við höfum ekki orðið vör við þær í atvinnuveganefnd, þær hafa ekki litið dagsins ljós þar, þær hafa ekki litið dagsins ljós í þinginu. Hvernig ætla menn að fara upp í 20 og eitthvað milljarða í veiðigjöldum, (Gripið fram í.) hvernig ætla þeir að fara með það? Hvar eru þessar tillögur og hvernig ætla menn að útfæra þær? Og hverjir eiga að borga brúsann? (Gripið fram í.)

Helsta vandamál okkar núna í nálgun á þetta mál (Forseti hringir.) hefur verið að taka aukið tillit til lítilla og meðalstórra fyrirtækja í sjávarútvegi. Það höfum við gert hér með því að ganga lengra (Forseti hringir.) í þeim efnum en nokkru sinni hefur verið gert. Og við erum að taka (Forseti hringir.) meiri veiðigjöld á þessum tíma en var gert nokkurn tíma á síðasta kjörtímabili.