veiðigjöld.
Herra forseti. Úr því að hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra notar atkvæðaskýringar sínar til að veitast að öðrum þingmönnum þá held ég að mér hljóti að leyfast að segja að ég hef verulega skömm á því hversu önugur, ósanngjarn og ómálefnalegur hæstv. sjávarútvegsráðherra var hér í árás sinni áðan á breytingartillögur minni hlutans. Ég velti því fyrir hvort hæstv. sjávarútvegsráðherra hafi haft þráan makríl í morgunmat sem hafi farið eitthvað illa í hann.
Meiri hlutinn hefur notað erfiðleika minni og meðalstórra útgerða við að bera veiðigjöld sem rök fyrir því að stórlækka þau á alla greinina þegar aðstæður eru þannig að íslenskur sjávarútvegur hefur búið við einstakt góðæri í átta ár og framlegðin, fjármunamyndun í greininni verður væntanlega á níunda tug milljarða í ár, (Gripið fram í.) þar af um helmingur auðlindarenta. (Forseti hringir.) Það er því engin leið að halda því fram að það ofbyði greiðslugetu greinarinnar ef byrðunum væri dreift út með sanngjörnum hætti, að hún legði meira(Forseti hringir.) af mörkum í þágu þjóðarinnar. Það blasir við hverjum manni sem skoðar tölur. Og það er eins og hvert annað kjaftæði (Forseti hringir.) hjá hv. þm. Jóni Gunnarssyni að það ofbyði greininni.