athugun á hagkvæmni lestarsamgangna.
Virðulegi forseti. Það kemur því miður í ljós í þessari umræðu að pólitísk tilvera sumra stjórnmálamanna stendur og fellur með því að viðhalda ákveðnum átökum, til að mynda átökunum um flugvöllinn í Vatnsmýri. Ef það glittir í einhvers konar skynsamlega niðurstöðu um þau mál verður fólk hrætt og heldur að öll önnur mál snúist um flugvöllinn í Vatnsmýri, m.a. mál sem eru (Gripið fram í.) alls ekki um flugvöllinn í Vatnsmýri. Þetta kemur fram hjá hv. þm. Höskuldi Þórhallssyni og hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur. Þau telja að þetta mál sé dulbúið og sé (Gripið fram í.) í raun og veru um flugvöllinn í Vatnsmýrinni. Það er ekki svo. Hér er um að ræða mál sem er stutt af öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, sem svæðisskipulagið styður sérstaklega og leggur áherslu á að það sé þeirri vinnu til framdráttar að fá stuðning þingsins við hana. Mér datt nú í hug, án þess að ég ætli að fara að syngja hér úr pontu, ágætislína (Gripið fram í: Jú, …) úr texta sem allir kunna, sem er svona, með leyfi forseta: „og enginn stöðvar tímans þunga nið“.