Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Ég tel rétt að gera grein fyrir atkvæði mínu í þessu máli. Ég tel að stjórnarráðslögin frá 1969, sem tóku gildi 1. janúar 1970, hafi verið sem næst alfullkomin en síðan hefur ýmislegt farið niður á við.
Ég tel margt í þessu frumvarpi auka á sveigjanleika í stjórnskipan en hins vegar var tilurð frumvarpsins með þeim hætti að upphafið var að flytja átti Fiskistofu frá Hafnarfirði og eins og það kom fram var það nánast eins og árás á sjálfsvirðingu starfsfólks Fiskistofu. Ég sætti mig illa við það og vona að framkoma ráðamanna við starfsfólk verði þannig að sómi sé að og ég vona að Fiskistofu verði hlíft í þessu máli.
Ég styð þetta mál með þeim rökum og vona það þetta verði góðu heilli gert að flestu leyti.
Ég hef lokið máli mínu.