uppbygging innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka.
Hæstv. forseti. Ég hafði ekki hugsað mér að taka til máls um þetta ágætismál við þessa umræðu. Ég gerði það þegar málið var flutt af meiri hluta atvinnuveganefndar, sem eru allir í nefndinni nema einn.
Þetta mál snýr að uppbyggingu innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka, eins og lögin heita, um breytingu á því að talan 1.800 millj. kr. plús verðbætur, sem fest var í lög, er felld úr gildi. Verður tekið á þessu máli á fjárlögum hvers árs og samkvæmt ívilnunarsamningi sem er í gildi hvað þetta verk varðar, en það er sem betur fer að fara í gang og ég fagna því mjög.
Ég sé mig tilknúinn til að koma hingað og ræða kostnaðaráætlunina vegna mikillar gagnrýni hv. þm. Vigdísar Hauksdóttur varðandi það mál. Grundvallaratriðið er að vafalaust hefur kostnaðaráætlunin við verkið verið unnin samkvæmt bestu vitneskju þeirra sem búa til slíkar áætlanir, þ.e. kostnaðaráætlunin sem lá frammi þegar þessi lög voru samþykkt. Líklega var unnið að þeim lögum á haustdögum eða rétt fyrir jól 2012, en þau voru svo samþykkt á vordögum 2013. Það er auðvitað bagalegt og vont að sú áætlun skuli ekki standast eða réttara sagt; við frekari hönnun, rannsóknir og fleira kom í ljós að verkið er dýrara. Það gerist oft í svona tilfellum og eins og ég sagði við 1. umr. er ekki verið að eyða voðalega miklum peningum í rannsóknir og annað slíkt þegar verið er að gera fyrstu kostnaðaráætlun við verk. Eða halda menn til dæmis að þær kostnaðaráætlanir sem liggja núna frammi um framkvæmd við ýmsa flugvelli sem komið gætu í stað Reykjavíkurflugvallar eða við breytingar á Reykjavíkurflugvelli, þær grófu kostnaðaráætlanir sem þar eru settar inn, séu einhver heilagur vísdómur og ef til þeirrar hönnunar kæmi að þær tölur tækju ekki breytingum? Af hverju halda menn að settur sé inn 20% óvissuþáttur?
Það er bagalegt að þetta skuli kosta meira en auðvitað verður að standa við það. Það var dálítið sérstakt á sínum tíma þegar hæstv. ríkisstjórn gerði ívilnunarsamning út af þessu verki, það var vísbending frá ríkisvaldinu um áhuga þess á því að þarna ætti að fara í uppbyggingu, að háhitasvæðin í Þingeyjasýslu yrðu nýtt og byggt upp á iðnaðarsvæðinu við Bakka. Þessi ívilnunarsamningur hefur að sjálfsögðu nýst mjög í öllu þessu ferli. Ef við hefðum ekki farið þá leið og ef þetta væri gert á hefðbundinn hátt, þ.e. ef aðilar að samkomulagi, sveitarfélög og aðrir, ætluðu að framkvæma, þá er kannski verið að ræða um ívilnunarsamninginn í heild. Venjan var nefnilega sú að hann kæmi alltaf síðastur, en þarna var brotið í blað og ívilnunarsamningur gerður áður en þó með skýrum fyrirvara um að hann tæki ekki gildi fyrr en búið væri að skrifa undir samninga, og það er búið núna.
Vegagerðin hefur fært rök fyrir því hvers vegna kostnaðaráætlunin hefur hækkað. Það eru ýmsar ástæður fyrir því og verður líka að hafa í huga að ívilnunarsamningurinn og þeir peningar sem ríkið þarf að leggja fram í þessu eru auðvitað bara hlutur sem við þurfum að taka þátt í gagnvart öðrum þjóðum og alveg sérstaklega þegar verið er að byggja upp atvinnu langt frá höfuðborgarsvæðinu eins og þarna er um að ræða. Það þarf að styrkja meira uppbygginguna á landsbyggðinni. Ég er alveg sannfærður um að þessi ívilnunarsamningur og þær upphæðir sem settar eru fram frá ríkinu muni koma ríflega til baka til ríkissjóðs í formi skatta og aukins hagvaxtar og annars sem kemur í framhaldi af því. Við erum sem sagt að skapa meiri fjölbreytni.
Ég man þá tíð þegar talað var um álver á Bakka við Húsavík, stórt og mikil álver, og ég man það líka þegar ég sannfærðist um að Landsvirkjun gæti aldrei lofað svo mikilli orku sem þyrfti í það á ákveðnum tímabilum vegna þess að þá voru menn að hefja framkvæmdir á Þeistareykjasvæðinu og byrja að virkja það svæði. Ekki er hægt að segja nákvæmlega til um hvað jarðvarmasvæði gefur af sér til langs tíma hvað vatnsafl varðar. Mér fannst því á ákveðnum tímapunkti það algerlega falla um sjálft sig að byggja þarna stórt álver. Þá kom þessi hugmynd upp í tíð hv. þm. Katrínar Júlíusdóttur, þáverandi hæstv. iðnaðarráðherra, en þá var samningurinn við Alcoa um byggingu álvers tekinn út og opnað fyrir þessar framkvæmdir með góðum stuðningi heimamanna. Það ber þennan ávöxt núna, þýska fyrirtækið hefur hafið framkvæmdir við uppbyggingu kísilsvers á Bakka sem veita mun 140 manns atvinnu á komandi árum og allt að 750 störf meðan á byggingartímanum stendur. Það er gott og ánægjulegt að það skuli ætla að takast.
Hér hefur lítils háttar verið rætt um atvinnustefnu ákveðinna flokka og hv. þm. Jón Gunnarsson fór mikinn í því þegar hann talaði um rammaáætlun. Sá sem hér stendur hefur ekki verið alltaf á móti atvinnuuppbyggingu, sama hvaða nafni hún nefnist. Ég tel hana vera nauðsynlega þróun þó að ég vilji líka stýra því að farið sé að lögum og gert á hefðbundinn hátt. Þess vegna er rammaáætlun verkfæri sem samþykkt var hér á sínum tíma og Þeistareykir voru í nýtingarflokki. Þess vegna er Landsvirkjun að vinna að því að selja orku til þeirra sem vilja kaupa hana og það á góðu verði. Ég hef verið sannfærður um að gott verð fáist þannig að þar breytum við þá orkunni í útflutningstekjur um leið og við sköpum mikla atvinnu.
Ég nefndi kostnaðaráætlunina hérna áðan, sem sjá má í skýrslunni um framtíð innanlandsflugs sem svokölluð Rögnunefnd var að skila af sér. Af því að ég hafði skrifað það á minnisblað hjá mér má ég til með að nefna að kostnaðaráætlunin sem var um uppbyggingu Hörpu hér í Reykjavík — stóðst hún? Nei. Er það til eftirbreytni? Nei. Ekkert af þessu er til eftirbreytni. Auðvitað eigum við að geta treyst áætlunum og unnið með nákvæmari áætlanir. Við höfum tekið dæmi um Vaðlaheiðargöng, en þar hefur orðið 10% hækkun á því verki bara vegna vísitölu. Við skulum því aðeins átta okkur á því hvernig menn áætla í þessu kerfi okkar varðandi vísitölur og annað slíkt.
Vaðlaheiðargöngin voru nauðsynleg framkvæmd og meðal annars út af uppbyggingunni á Bakka. Þar voru þau sjónarmið sett fram að styrkja innviðina, eins og síðasta ríkisstjórn gerði með ívilnunarsamningi sínum, og að hefja framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng til að byggja upp Miðnorðurlandið og Norðurlandið allt sem eitt stórt atvinnusvæði. Innviðabygging, sem við eru alltaf að tala um, er sem sagt þarna í framkvæmd og því ber að fagna.
Mér finnst ekki vera voðalega mikill ágreiningur um þetta mál þó að sumir þingmenn hafi hátt, eins og hv. þm. Vigdís Hauksdóttir, sem virðist líka það best þegar hún kemur í ræðustól að geta skammað fyrrverandi ríkisstjórn og alveg sérstaklega hv. þm. Steingrím J. Sigfússon, fyrrverandi hæstv. ráðherra í nokkrum ráðuneytum. Ég ætla að sleppa því en vil enda með því að segja, virðulegur forseti, að það var ekki meiri ágreiningur um málið á vordögum 2013 en svo að níu þingmenn Sjálfstæðisflokksins greiddu frumvarpinu atkvæði sitt, sex þingmenn Framsóknarflokksins greiddu frumvarpinu atkvæði sitt, tveir voru fjarverandi. Þá voru þingmenn Framsóknarflokksins bara átta, held ég. En nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins voru fjarstaddir. Það nefni ég nú bara til marks um þá samstöðu sem var um málið á sínum tíma vegna þess að frumvarpið var samþykkt með 33:5 atkvæðum, níu greiddu ekki atkvæði og 16 voru fjarverandi eða með fjarvist. Um málið var gott samkomulag, eins og ég tel að sé núna þó svo að ég taki eftir því að nokkrir hv. þingmenn vilja helst nota það sem eitthvert ádeiluefni við fyrrverandi ríkisstjórn af því að það var í raun og veru dálítið sérstakt að ákveðin tala skyldi vera bundin í lög varðandi þessa framkvæmd.
Að lokum, virðulegi forseti. Ég styð þetta mál og er einn af flutningsmönnum þessarar tillögu. Ég fagna því mjög að loksins sé hafin atvinnuuppbygging í landi Bakka við Húsavík vegna þess að búið er að tala um það svo lengi sem ég hef verið þingmaður á þessu svæði.