144. löggjafarþing — 145. fundur,  2. júlí 2015.

stöðugleikaskattur.

786. mál
[16:35]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (Bf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Frosta Sigurjónssyni fyrir samstarfið í efnahags- og viðskiptanefnd um þessi mál, raunar önnur líka. Mikill einhugur ríkti í efnahags- og viðskiptanefnd um þessi mál og í rauninni finn ég mig ekki tilknúinn til að segja mikið um þau annað en að ég er bara mjög ánægður með þessi frumvörp og ég tel að þau hafi batnað líka í meðförum nefndarinnar. Þetta snerist dálítið mikið um að búa til hárrétt, lagatæknilegt orðalag til að hnýta alla mögulega lausa enda í þessari lagasetningu, sem er lagasetning sem á sér eiginlega ekki nein fordæmi enda er verið að glíma við vanda sem á sér ekki fordæmi.

Ég er mjög ánægður með þessi frumvörp, ég vona að markmiðin náist og ég hef mikla trú á því, sérstaklega eftir vinnu nefndarinnar. En það eru hins vegar spurningar sem vakna og ein af þeim sem hefur vaknað í þjóðfélaginu meðal sumra er að of mikill munur sé á milli stöðugleikaframlags og þess sem mundi skila sér í ríkissjóð í gegnum stöðugleikaskatt og kröfuhafar séu að fá of góðan samning í gegnum stöðugleikaframlag og nauðasamninga. Ég er ekki þeirrar skoðunar. Ég tel að þessi gagnrýni byggist á misskilningi. Þetta eru ekki tekjuöflunarfrumvörp, þetta snýst ekki um að afla tekna fyrir ríkissjóð heldur í rauninni að eyða ákveðnum peningum og ég er ánægður með að einhugur ríkti um það í nefndinni að líta ekki svo á að þetta væru peningar sem væru að fara út í hagkerfið og leiða til þenslu. En hvað segir hv. þm. Frosti Sigurjónsson um þá gagnrýni sem hefur orðið vart við undanfarið?