stöðugleikaskattur.
Virðulegi forseti. Það var ekki ætlun mín að spilla þeim góða friði sem ríkir í þingsalnum um þetta (ÁPÁ: En þú ert búinn að því.) mikilvæga mál. Það sem ég lagði áherslu á var að það væri (Gripið fram í: … forsætisráðherra?) mikilvægt að þingheimur stæði saman í þessu máli og ég fagnaði því. Ég sagði bara skoðun mína. Ég tel, og ég hygg að margir séu mér sammála um það og mér fannst glitta í það hjá hv. þingmanni án þess að ég ætli að fullyrða um það, að í krafti þess sjálfstæðis sem við höfum varðandi það lagasetningarvald, varðandi skattlagningarvald, sem við leggjum til að beitt verði í þessu máli og varðandi sjálfstæði seðlabanka okkar, getum við gengið lengra í því að verja hagsmuni Íslendinga í málum eins og þessum en til að mynda land eins og Grikkland. Okkur berast miklar fréttir þaðan þessa dagana, (Gripið fram í.) af neyðarfundum grískra aðila með seðlabankastjóra Evrópu o.s.frv., vegna þess að þeir hafa ekki það sjálfstæði sem Íslendingar hafa. Ég var einfaldlega að lýsa þeirri skoðun minni. Það var ekki ætlunin að spilla friði eða öðru hvað það snertir. En þetta er mín skoðun og ég þykist vita að margir séu mér sammála og að fjölgað hafi í þeim hópi eftir að við höfum horft á þau vandamál sem Grikkir eru að ganga í gegnum, en þeir hafa ekki að fullu þau þrjú atriði sem ég nefndi áðan, þ.e. möguleika til lagasetningar, möguleika til skattlagningar og sjálfstæðan seðlabanka.