144. löggjafarþing — 146. fundur,  3. júlí 2015.

stöðugleikaskattur.

786. mál
[10:18]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Það er eitt sem ég saknaði í þessari umræðu. Allir formenn flokkanna nema einn að mér vitandi hafa talað mjög skýrt um að það eigi ekki að freistast til að nota þessa peninga í annað en það sem tryggir stöðugleika og freistast ekki til að nota þessa peninga sem renna inn á hlaupareikning í Seðlabankanum, ef farin er þessi leið, ef menn lenda í skattinum. Allir formenn hinna flokkanna og náttúrlega hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar, Frosti Sigurjónsson, hafa verið mjög skýrir hvað þetta varðar. Þetta er ofboðslega mikilvægt atriði af því að ef stjórnmálamenn freistast til þess að nota þessa peninga í annað en það sem er kveðið á um í frumvörpunum þá þýðir það að réttarstaða okkar er farin út um gluggann. Þess vegna er mikilvægt að þetta komi skýrt fram hjá öllum forustumönnum stjórnmálaflokkanna.