145. löggjafarþing — 1. fundur,  8. sept. 2015.

tilkynning um stjórnir þingflokka.

[13:04]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur eftirfarandi tilkynning um breytingu á stjórn þingflokks Framsóknarflokksins:

Ásmundur Einar Daðason er formaður, Þórunn Egilsdóttir er varaformaður og Willum Þór Þórsson er ritari.

Borist hefur tilkynning um breytingu á stjórn þingflokks Bjartrar framtíðar:

Brynhildur Pétursdóttir er formaður, Páll Valur Björnsson er varaformaður og Björt Ólafsdóttir er ritari.

Borist hefur tilkynning um eftirfarandi breytingu á stjórn þingflokks Pírata:

Birgitta Jónsdóttir er formaður, Helgi Hrafn Gunnarsson er varaformaður og Ásta Guðrún Helgadóttir er ritari.

Borist hefur tilkynning um þá breytingu á stjórn þingflokks Samfylkingarinnar að Valgerður Bjarnadóttir er varaformaður þingflokksins.