fjárlög 2016.
Herra forseti. Ég þakka fyrir þá umræðu sem verið hefur í dag og lýsi yfir vilja til að eiga eins gott samstarf við fjárlaganefnd og mögulegt er, veita upplýsingar og bregðast við fyrirspurnum eftir því sem þær kunna að berast út af einstökum málum. Hér á morgun verða ráðherrar til svara fyrir þá kafla sem undir þá heyra og þá gefst þinginu gott tækifæri til að fara dýpra ofan í einstök málefnasvið.
Við höfum að mestu verið að ræða hér stóru myndina og mér heyrist að við séum sammála um að það horfi til betri vegar með efnahagsmálin í víðu samhengi.
Mér finnst mikilvægt í umræðunni um ríkisfjármálin að við ræðum samhliða þeim og um þau á grundvelli langtímaáætlunar, þ.e. við höfum í huga þá umræðu sem átti sér stað hér þegar við lögðum fram ríkisfjármálaáætlun í vor að við skoðum hvert við munum stefna til lengri tíma og að okkur auðnist nú í haust að ljúka meðferð frumvarps til laga um opinber fjármál sem mun þá styrkja enn frekar grundvöll þessarar langtímastefnumörkunar og fela m.a. í sér innleiðingu á fjármálareglum.
Um þær áherslur sem er að finna í frumvarpinu vil ég í fyrsta lagi segja að þar er reynt að fara bil beggja, þ.e. annars vegar að bæta enn frekar afkomu ríkisins, vinna að greiðslu skulda og létta á vaxtagjöldunum, en um leið að nýta aukið svigrúm til að létta undir með heimilunum í landinu og atvinnustarfseminni. Samhliða frumvarpinu kynnum við nokkuð róttækar breytingar á neyslusköttum sem ég tel að skipti miklu. Við lækkum tekjuskattinn í tveimur skrefum og höfum þá tekið milliþrepið alveg út þegar það er að fullu komið til framkvæmda, milliþrepið sem var til staðar þegar við komum hér, ný ríkisstjórn, að málum. Það stóð í 25,8% sem tók við þegar laun voru einungis rétt um 250 þús. kr. Þá fóru menn að greiða tekjuskatt til ríkisins í 25,8%, en nýtt þrep fyrir fyrsta og annað stigið verður 22,5%. Þess vegna er þetta mikilvæg kjarabót fyrir millitekjuhópana en þegar allt er tekið saman léttum við hér mjög undir með öllum launastiganum neðan frá séð. Minnst kemur hlutfallslega til þeirra sem efst eru í launastiganum.
Samhliða skattalækkunum og einföldun neysluskatta styrkjum við innviðina enn frekar, en jafnvel þótt það sé mjög aðkallandi að koma enn frekar að málum og með sterkari hætti svo víða höfum við sett okkur ákveðna útgjaldareglu sem við reynum að fylgja, að vöxtur frumgjaldanna verði ekki meiri en rúmt prósent að meðaltali á næstu árum. Ég tel að sú nálgun skipti máli. Ég tel að um leið og við förum að horfa til lengri tíma með markmiðssetningu og síðan að reyna að máta okkur inn í þann ramma sem við fyrst setjum, t.d. varðandi vöxt útgaldanna, þá fari okkur að farnast betur bæði í því að láta framkvæmd fjárlaga halda betur en oft hefur verið raunin og eins að tryggja að það sem við erum að gera í ríkisfjármálunum styðji betur við ástandið í efnahagslífinu.
Við höfum heyrt ýmis sjónarmið um þetta fjárlagafrumvarp. Ég hef tekið eftir því að það hefur verið gagnrýnt fyrir að vera ekki nægilega aðhaldssamt og hér í þinginu segja sumir: Það þarf að auka útgjöld, þannig að maður fær að sjá báðar hliðar. Þess vegna tel ég að það séu ágætisrök fyrir því að við höfum farið góða millileið í þessu. Því má halda fram að aðhaldið sé ekki mjög mikið í frumvarpinu. Ef við horfum á aðhaldskröfuna þá var engin slík gerð á almannatryggingakerfið og einungis 0,5% á heilbrigðiskerfi og menntakerfi, en 0,75% aðhaldskrafa er gerð annars staðar. Það sem gerist síðan þegar við veitum einstökum málaflokkum útgjaldasvigrúm er að í sumum tilvikum nota menn útgjaldasvigrúmið til að eyða aðhaldskröfunni. Þannig sjáum við í raun minni raunvöxt útgjalda en hægt hefði verið að skapa svigrúm fyrir í einstökum málaflokkum, t.d. í menntamálum vegna þess að menn vildu hlífa þeim málaflokki við frekari aðhaldskröfu. Þetta nefni ég í tilefni af því að þingmálið hefur að hluta til verið gagnrýnt utan frá á þeirri forsendu að ekki sjáist merki nægilegs aðhalds en til að botna þá umræðu bendi ég á að frumgjöld okkar eru áfram að lækka sem hlutfall af landsframleiðslu. Ekki er til það land í Evrópusambandinu sem er með meiri frumjöfnuð en Ísland og við erum reyndar með talsvert meiri frumjöfnuð en önnur lönd. Ef við horfum til ársins 2014 er hann langtum meiri á Íslandi en nokkurs staðar annars staðar. Með svo miklum frumjöfnuði eigum við fyrir hinum háu vaxtagjöldum en þau eru auðvitað okkar helsta vandamál um þessar mundir og það sem helst stendur okkur fyrir þrifum við að gera betur á ýmsum málasviðum. Þess vegna er fagnaðarefni að það stefnir í að við höfum svigrúm á næsta ári til að greiða mikið niður skuldir. Við gerum ráð fyrir meira en 200 milljarða niðurgreiðslu skulda og svo skulum við sjá hvernig spilast úr, hvort hægt verði að gera meira í því efni, en í langtímaáætluninni er stöðugt verið að bæta skuldahlutföllin, á hverju ári. Þetta er meðal þess sem skiptir sköpum þegar kemur að því að meta lánshæfi Íslands. Við höfum nýlega fengið betra lánshæfi, hækkun á lánshæfismati Íslands og það gæti haldið áfram ef við höldum okkur við þessa stefnumörkun.
Hér hefur verið töluvert mikið rætt um bótakerfið. Ég nefndi það rétt áðan að við gerðum enga hagræðingarkröfu á almannatryggingar en það verður töluvert mikil hækkun. Hér hafa menn rætt um að gera þurfi enn betur. Ég hef alveg fullan skilning á því að menn vilji gera enn betur en það breytir því ekki að við erum að gera mjög mikið nú þegar. Ef við horfum t.d. til lífeyrisþega, sem hafa engar atvinnutekjur og hafa engin uppsöfnuð lífeyrsréttindi, eru þeir vel staddir með þeim tryggingum sem þeir hafa í almannatryggingakerfinu? Nei, því getur enginn þeirra haldið fram. En staða þeirra batnar samt á næsta ári, hún batnar þó nokkuð og hún hefur verið að batna á þessu ári. Staða þeirra batnaði líka í fyrra og það er ekki sjálfgefið að við getum bætt stöðu þessa fólks á hverju ári. Það er ekki langt síðan við þurftum að ganga á réttindi í almannatryggingakerfinu. Það var gert í þessum sal.
En ef við höldum áfram að taka til á skuldahliðinni styrkjum við enn frekar stöðu okkar til að koma betur til móts við þá sem hafa brýnustu þörfina fyrir stuðning og það sama á að sjálfsögðu við um örorkulífeyrinn. Það eru veikleikar í kerfinu okkar og verið er að ræða í nefnd um endurskoðun almannatryggingakerfisins, sem ég bind vonir við að skili af sér á næstu vikum tillögum um hvernig við getum þétt kerfið enn frekar. Þar hefur verið til sérstakrar umræðu kerfisbreyting sem lýtur að því að fara meira út í starfsgetumat og er nokkuð umdeilt. En ég tel að við mundum geta náð miklum framförum í þessum málum ef okkur tækist að tryggja sérstaklega þeim sem byggja afkomu sína að hluta á örorkulífeyri, skýran rétt til að sækja sér atvinnutekjur án þess að það leiddi til skerðinga, en í því liggur einmitt hugmyndin um starfsgetumatið.
Við vitum öll að þegar gerðar eru breytingar úr einu kerfi yfir í annað vilja menn tryggja að ekki komi upp nokkurt einasta tilvik þar sem réttindin verða eitthvað lakari í nýja kerfinu. Það getur leitt til þess að kerfisbreytingin ein og sér leiði til talsverðs útgjaldaauka. En við skulum ekki gefa okkur fyrir fram að við náum ekki góðri niðurstöðu um þetta mál. Það sem mér finnst vera til sérstakrar athugunar eða sem við þurfum að skoða alveg sérstaklega í þessari umferð eru allar skerðingarnar vegna tekna úr lífeyriskerfinu eða vegna atvinnutekna og þau ólíku tilvik sem gera kerfið óendanlega flókið. Kerfið hefur verið stagbætt í gegnum tíðina sem hefur beinst að einstaka hópum sem eru sæmilega settir í kerfinu á meðan aðrir bera hlutfallslega skarðari hlut frá borði. Þetta eru flókin kerfi en góðu fréttirnar eru þær að við erum að bæta í þau að þessu sinni.
Á öðrum sviðum er fagnaðarefni að við getum styrkt heilsugæsluna á heilbrigðissviðinu. Þar eru miklir fjármunir lagðir í húsnæðismálin í frumvarpinu. Við erum einnig að gera átak á sviði menntamála í vísindum og nýsköpun og koma miklir fjármunir, nýir peningar inn í málaflokkinn. Sumir hafa rætt um ferðaþjónustuna sérstaklega, hvort ekki eigi að halda áfram uppbyggingu þar. Ég verð að segja alveg eins og er að það hefur komið mér dálítið í opna skjöldu að þrátt fyrir mjög ríkan vilja ríkisstjórnarinnar til að styðja við innviðauppbyggingu á því sviði virðist mér sem menn hafi ekki verið tilbúnir, þrátt fyrir mjög ákveðið ákall til stjórnvalda um að styðja við uppbyggingu, til að taka við þeim fjármunum sem ríkisstjórnin var tilbúin til að leggja í þann málaflokk. Þannig sitja mjög stórar fjárhæðir eftir, meira en milljarður, og bíða eftir að menn hrindi í framkvæmd þeim áformum sem urðu tilefni til fjárheimilda á þessu sviði.
Ég ætla ekki frekar að rekja einstaka málaflokka. Ég ætla að ljúka máli mínu á því að segja að við erum með fjárlagafrumvarp sem ber þess skýr merki að við höfum snúið vörn í sókn. Nú finnst mér öllu skipta þegar þau umskipti eru orðin alveg skýr að við hugum að næsta skrefi sem er að undirbyggja langtímaáætlanir fyrir ríkisbúskapinn. Lög um opinber fjármál eru lykilatriði í því. Næsta ríkisfjármálaáætlun til lengri tíma sömuleiðis og það þarf að breyta aðeins nálgun þingsins í þessum málum þannig að það sé jafn sjálfsagður hluti umræðunnar að ræða um hvert horfir og að ræða um einstaka einangraða liði. Takist það hefur ríkið að mínu viti gert sitt til að byggja undir stöðugleikann. Vissulega þurfum við áfram að ræða peningamálastefnu og önnur slík mikilvæg mál en þá er a.m.k. ekki upp á ríkið að klaga, að það valdi óþarfa þenslu í efnahagskerfinu með ákvörðunum sínum.
Þá ætla ég að koma að síðasta atriðinu sem ég ætla að minnast á í máli mínu, sem ég vænti að við munum ræða allnokkuð hér í vetur og verði talsvert á dagskrá, ekki síst vegna þess að sumir kjarasamningar eru enn ófrágengnir, það er vinnumarkaðurinn. Það er hlekkurinn sem okkur vantar til að styrkja undirstöður stöðugleikans í landinu. Þetta frumvarp og önnur mál sem ég hef verið að nefna eru lykilþættir í því að auka stöðugleikann í landinu og ná niður vaxtastiginu, halda verðbólgu lágri og atvinnustigi á góðum slóðum. Veikleiki á vinnumarkaðinum er að mínu áliti helsta áhyggjuefni okkar þegar rætt er um möguleikann á því að lækka vexti, lækka verðbólgu og auka stöðugleika í landinu. Það er vegna þess hversu brotakennd myndin er þegar kemur að vinnumarkaðinum, hve smáir hópar geta notað stöðu sína til að þrýsta á um hækkanir umfram aðra og þar með riðlað allri samstöðu. Það er mér alveg sérstaklega hugleikið um þessar mundir eftir síðasta vetur og það þarf ekki annað en benda á að þegar þetta ár hófst — og nú er bara september, það eru bara tæpir níu mánuðir liðnir — vorum við með lága verðbólgu, Seðlabankinn hafði tiltölulega nýlega lækkað vexti. Síðan fór af stað atburðarás sem leiddi til mjög umfangsmikilla launahækkana og smám saman erum við komin í þá stöðu að Seðlabankinn er í millitíðinni búinn að hækka vexti í tvígang, stéttarfélög hafa stigið fram, sparkað í Seðlabankann og sagt hann vera á rangri braut og hver bendir á annan til að forða sér (Forseti hringir.) frá því að bera ábyrgð á auknum þenslumerkjum í samfélaginu. (Forseti hringir.) Við erum sem sagt búin að fara heilan hring í vítahring launahækkana og víxlhækkana við verðlag og vexti á nokkrum mánuðum. (Forseti hringir.) Nú þurfa menn að staldra við og byggja betri undirstöður fyrir framtíðina.