145. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[19:06]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vænti þess í framhaldi af svörum hæstv. ráðherra að við fáum betri sundurgreiningu á því hvernig á að verja þessum 105 milljónum og hversu mikið er gert ráð fyrir að fari til símenntunarmiðstöðva og hversu mikið til Keilis. Það er mjög athyglisvert, jafnvel þó að byggt sé á samningsbundnu framlagi, að maður skuli hvergi sjá það sérgreint í fjárlagafrumvarpi og geta gert sér grein fyrir því hvað raunverulega er verið að greiða þar fyrir.

Varðandi 25 ára regluna þá verð ég bara að segja, þó að ég sé áhugamaður um margt norrænt, að ég er ekki þannig að ég vilji apa allt útlenskt upp án nokkurrar athugunar. Það liggur auðvitað fyrir að íslenskt menntakerfi hefur ákveðna sérstöðu og stór hluti þeirrar sérstöðu felst í því að fólk hefur farið úr framhaldsskólanámi, aflað sér reynslu á vinnumarkaði og komið til baka inn í framhaldsskólana með þá reynslu. Þetta er til dæmis talinn einn helsti grunnur að frumkvöðlastarfi á Íslandi. Ég get talið upp nokkra forstjóra frumkvöðlafyrirtækja í landinu sem hafa nákvæmlega átt þessa þroskabraut.

Það er því ekki skynsamlegt að taka þessa möguleika af fólki, að fara inn í framhaldsskólana og miðla af þekkingu sinni, því að ég deili ekki þeirri draumsýn hæstv. ráðherra að framhaldsskólinn eigi að vera einsleitur ungmennaskóli þar sem enginn sé með nokkra reynslu af atvinnulífi og hvorki kennarar né nemendur hafi nokkru sinni unnið annars staðar en í skólum. Ég held að það sé okkur ekki til góðs og ég held að það muni gerbreyta íslensku menntakerfi.

Ég vil vekja athygli á því að líka hafa verið lagðar fram athyglisverðar greiningar af hálfu okkar færustu sérfræðinga um það að við kunnum að vera að glata verðmætri sérstöðu með þessum breytingum ráðherrans. Ég vek athygli á því að hér er í fjárlagafrumvarpi verið að hrinda þessu í framkvæmd. Þetta er menntapólitískt mál sem hefur aldrei verið rætt hér á Alþingi, ráðherrann hefur aldrei komið með það inn til umfjöllunar hér. Það er einfaldlega þannig að fyrir því eru mörg gild rök að það sé farsælt að eldri og yngri nemendur deili skólum, (Forseti hringir.) frekar en að búið sé til annað veigaminna skólakerfi fyrir þá sem einhverra hluta vegna þurfa eða vilja afla sér reynslu á vinnumarkaði og koma svo aftur til framhaldsnáms. Þetta skiptir sérstaklega miklu máli í hinum dreifðu byggðum (Forseti hringir.) þar sem samkennsla yngri og eldri nemenda hefur verið grundvöllur rekstrarforsendna ýmissa smærri skóla.

Ég vil þess vegna segja: Við þurfum á því að halda að fá hér inn af hálfu ráðherrans þingsályktunartillögu um framhaldssfræðslu og fyrirkomulag þannig að Alþingi Íslendinga geti blessað eða synjað þessari sérskoðun hæstv. ráðherra.