145. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2015.

almannatryggingar.

3. mál
[17:36]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og hækkun lífeyris í 300 þús. kr. Ég kem hér upp til þess að styðja þetta mál sem hér hefur verið mælt fyrir og tel fulla þörf á því að horft sé til elli- og örorkulífeyrisþega samhliða því að stefnt sé á að lágmarkslaun verði 300 þús. kr. í landinu eftir þrjú ár. Við megum auðvitað alls ekki skilja þennan hóp eftir óbættan þegar loksins hefur náðst að stíga stærri skref en gert hefur verið í kjarabótum þeirra lægst launuðu og það er auðvitað vel að þá er ekki hægt að horfa upp á það að menn séu ekki að stíga sömu skref í því sem snýr að ríkisvaldinu.

Vissulega er það rétt sem hefur komið fram hér í umræðunni að elli- og örorkulífeyrisþegar þurftu að búa við skerðingar á síðasta kjörtímabili eftir hið mikla efnahagshrun sem varð, hjá því varð ekki komist. Auðvitað horfðu menn til þess að þegar betur áraði, eins og nú er orðið, mundi það verða eitt af fyrstu verkum ríkisvaldsins að bæta kjör þeirra hópa sem þurftu að fá á sig skerðingar og það yrði gert myndarlega. Mér finnst mjög eðlilegt að þá sé horft sé til breytinga á lægstu launum í landinu, lágmarkslaunum í landinu, sem verkalýðsfélögin og stéttarfélögin hafa náð í þeim samningum sem horft er til til viðmiðunar í þessu sambandi. En það má líka geta þess að á síðasta kjörtímabili var dregin ákveðin lína, varnarlína gagnvart kjörum elli- og örorkulífeyrisþega. Sú lína lá um 200 þús. kr. og hún var varin, að kjörin færu ekki neðar en það. Þá má benda á að á þeim tíma voru lágmarkslaun undir þeirri upphæð, um 180 þús. kr. Og ef við horfum á þetta í því samhengi þá er það bara svo eðlilegur hlutur að þessir hópar njóti líka góðs af aukinni velsæld í landinu og verði ekki eftirbátar þeirra sem eru á hinum almenna vinnumarkaði og hafa náð þeim áfanga, sem er nú ekki til að hrópa húrra fyrir, að fá í heildarlaun að lágmarki 300 þús. kr. eftir þrjú ár.

Það má líka benda á að þessir hópar, hvort sem það er láglaunafólk eða elli- og örorkulífeyrisþegar, hafa það lágar tekjur að stærstur hluti af útgjöldum þeirra fer í framfærslu og neyslu. Það er ekki eins og þetta fólk sé að leggja fyrir inn á bankabók af tekjum sínum. Ef lífeyrir og lágmarkslaun hækka fer sú hækkun að mestu leyti eða öllu leyti í uppsafnaða þörf hjá því fólki sem þar á í hlut. Það er uppsöfnuð þörf til að kaupa hvort sem er ýmsan varning fyrir heimilið, lyf, fatnað, heilbrigðisþjónustu og svo má lengi telja. Það er engin hætta á öðru en að þessir fjármunir fari aftur út í veltu í þjóðfélaginu og skili sér bæði í ríkiskassann og inn í hagkerfið. Mér finnst fólk oft gleyma því í þessari umræðu að þessir peningar fari mjög hratt og eiginlega hraðar út í neysluna aftur en hjá hálaunafólki sem skammtar sér laun, margt hvert, í gegnum ýmsar uppbætur og sérsamninga innan fyrirtækjanna.

Mér finnst líka þurfa að horfa til þess að elli- og örorkulífeyrisþegar eru fjölbreyttur hópur og vissulega er munur á milli hópa þar eins og gerist og gengur, sumir eru betur settir og aðrir eru verr settir. Ég held að það þurfi að horfa til þess, eins og kemur fram hér í greinargerð, að konur eru í sérstökum áhættuhópi vegna þess að þær fá almennt lægri greiðslur úr lífeyrissjóðum. Ég þekki það vel frá því ég starfaði innan verkalýðshreyfingarinnar að láglaunakonur, með lítinn lífeyri þegar kom að því að taka lífeyri, lenda yfirleitt alltaf í þessum neðstu mörkum. Það er allt of stór hópur láglaunakvenna sem hefur unnið erfiðisvinnu meðfram heimilisstörfum, þær eru slitnar og lúnar eftir langt ævistarf og þegar þær hætta á vinnumarkaðnum og einhver mundi halda að þær gætu þá farið að njóta efri áranna og kannski veitt sér eitthvað í frístundum, þá dugar það sem er í boði núna bara rétt til að skrimta. Þetta er til háborinnar skammar hjá okkar þjóðfélagi að búa svona að því fólki sem hefur erfiðað og stritað í gegnum árin til þess að koma þessari þjóð á þann stað sem hún er þó í dag. Ég held, þó að alltaf sé hægt að setja verðmiða á alla hluti og eigi að gera það þá er svo sannarlega innstæða fyrir því að þessir hópar fái sambærilegar hækkanir og á almenna vinnumarkaðnum hjá þeim lægst launuðu.

Hér hefur verið talað um hvernig eigi að fjármagna þetta. Það á auðvitað að fjármagna þetta eins og annað sem við gerum úr sameiginlegum sjóðum okkar landsmanna. Þess vegna er það mjög slæmt og meira en það, það er grafalvarlegt að ríkisvaldið sé að veikja svo tekjustofna núna með því að breyta skattkerfinu og fækka skattþrepum og sé í raun og veru að fara aftur á þann stað sem var fyrir hrun þegar þeir tekjulægstu og með miðlungstekjur borguðu hlutfallslega miklu meira til samfélagsins en þeir tekjuháu. Þegar upp er staðið þá erum við alltaf að takast á um skiptinguna á þjóðarkökunni og það sem ég og við vinstra fólk erum að berjast fyrir er að það verði meiri jöfnuður í samfélaginu, það kallist á við að fá inn tekjur til að standa undir öflugu velferðarkerfi og hópar eins og elli- og örorkulífeyrisþegar sem búa við erfið kjör séu ekki skildir eftir á köldum klaka þegar efnahagslífið og hagur ríkisins fer ört batnandi.

Þessi ríkisstjórn ætlar greinilega að lækka skatta á þá tekjumeiri og henda frá sér tekjustofnum, ég nefni auðlegðarskatt og orkuskatt og miklum fjárhæðum í veiðigjöldum á stórútgerðina. Hún kýs að fórna þessu — til þess að gera hvað? Að ýta enn undir ójöfnuð í landinu. Ég gef ekki mikið fyrir það þegar stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar koma upp og kveinka sér undan því að þetta mál sem liggur hér fyrir og er til umræðu kosti svo mikið að við höfum bara ekki efni á því. Það er ekki rétt að við höfum ekki efni á því heldur er kökunni vitlaust skipt og við eigum að hafa efni á því að bjóða elli- og örorkulífeyrisþegum okkar mannsæmandi laun til að framfleyta sér. Ég styð þetta mál heils hugar og tel að þetta sé stórt mál sem fari inn í þá umræðu sem er fram undan varðandi fjárlögin og almennt hvað varðar tekjur og útgjöld ríkissjóðs og hvernig þjóðarkökunni er skipt á milli landsmanna.