ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2016.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016. Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á allmörgum lögum í samræmi við forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016. Efnisatriði frumvarpsins eru af margvíslegum toga og hafa bæði áhrif á tekju- og gjaldahlið fjárlagafrumvarpsins. Ég mun nú fjalla nokkuð ítarlega um þau atriði sem mestu máli skipta.
Í fyrsta lagi eru færri skattþrep vegna tekjuskatts einstaklinga. Hér ber fyrst að nefna þá breytingartillögu á tekjuskatti einstaklinga sem ríkisstjórnin kynnti í tengslum við gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði á vormánuðum þessa árs. Í tillögunni felst veruleg breyting á tekjuskatti einstaklinga í átt til einföldunar jafnframt því sem ráðstöfunartekjur allra launþega hækka, en þó sérstaklega millitekjuhópa. Þannig munu ráðstöfunartekjur einstaklings með 600 þús. kr. í mánaðarlaun, sem eru rétt rúmlega meðaltekjur, hækka um liðlega 10 þús. kr. á mánuði vegna tekjuskattsbreytingarinnar að öðru óbreyttu. Í því samhengi er vert að rifja upp stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um endurskoðun skattkerfisins með einföldun í huga, einkum til að auka skilvirkni þess. Sú breyting sem hér er kynnt er í fullu samræmi við stefnuyfirlýsinguna, auk þess að vera mikilvægt innlegg í kjaraviðræðurnar síðastliðið vor og kemur í raun til viðbótar því skrefi sem tekið var í sömu átt í ársbyrjun 2014.
Í frumvarpinu er lagt til að skattþrepum vegna tekjuskatts einstaklinga verði fækkað úr þremur í tvö á tveimur árum ásamt því sem tekjumörkum verði breytt. Við það munu sem fyrr segir ráðstöfunartekjur einstaklinga hækka um leið og skattbyrðin lækkar. Í fyrri áfanganum sem kemur til framkvæmda 1. janúar 2016 verður skatthlutfallið í skattþrepi 1, neðsta skattþrepinu, lækkað úr 22,86% í 22,68%, þ.e. um 0,18 prósentustig. Jafnframt mun skattþrep 2, miðþrepið, lækka um 1,4 prósentustig, úr 25,3% í 23,9%. Í seinni áfanganum sem mun koma til framkvæmda í ársbyrjun 2017 lækkar skatthlutfallið í neðra þrepinu í 22,5% en skattþrep 2, miðþrepið, fellur út. Það þýðir að skattþrep 3, eins og það lítur út í dag, verður efra þrepið í tveggja þrepa tekjuskatti þar sem skatthlutfallið helst óbreytt frá því sem nú er, 31,8%. Varðandi tekjumörkin verða efri þrepamörkin lækkuð úr 836 þús. kr. í 770 þús. kr. á mánuði 1. janúar 2016 en neðri mörkin haldast óbreytt og á árinu 2017 verða þrepamörkin aðeins ein, þ.e. 700 þús. kr. á mánuði. Rétt er að vekja athygli á því að þannig ákvarðaðar fjárhæðir þrepamarka munu síðan að öðru óbreyttu breytast í takt við launavísitölu í árslok 2015 og 2016 í samræmi við ákvæði tekjuskattslaganna og verða ef að líkum lætur talsvert hærri en hér er tilgreint.
Áætlað er að framangreindar tillögur muni lækka tekjur ríkissjóðs um 5,5 milljarða kr. á ári, eða allt að 11 milljarða kr., þegar breytingin er komin að fullu til framkvæmda frá og með árinu 2017, þ.e. 5,5 milljarðar á ári frá og með næstu áramótum en síðan þegar það er að fullu komið fram er það um 11 milljarðar.
Ég ætla aðeins að rifja það upp að með þeim breytingum sem ég minntist á frá árinu 2014 var miðþrepið lækkað úr 25,8% niður í 25,3% og með því að það fellur út hefur ríkisstjórnin á þessu kjörtímabili lækkað skattbyrðina eða tekjuskattsprósentuna fyrir þau laun sem hingað til hafa verið í miðþrepinu úr 25,8% tekjuskatti niður í 22,5%, það er 3,3 prósentustiga lækkun.
Í öðru lagi ætla ég að ræða um afnám tolla. Lagt er til að stór skref verði tekin í þá átt að afnema tolla á næstu tveimur árum. Þá munu standa eftir landbúnaðarafurðir í tollakerfinu, en tollar leggjast þó einungis á tilteknar landbúnaðarafurðir við innflutning.
Fyrra skrefið mun ná til fatnaðar og skófatnaðar og kemur til framkvæmda í ársbyrjun næsta árs en síðara skrefið tekur til allrar annarrar iðnaðarvöru og kemur til framkvæmda í ársbyrjun 2017. Þessar tillögur eru í fullu samræmi við niðurstöður starfshóps sem sá sem hér talar skipaði í upphafi árs og hópurinn fékk það hlutverk að kortleggja heildarendurskoðun á tollkerfinu með einföldun að leiðarljósi. Einnig er rétt að nefna að þessi breytingartillaga var kunngerð í tengslum við yfirlýsingu sem ríkisstjórnin gaf út við gerð kjarasamninga í vor en þar var því lýst yfir að tollar á fatnað og skó yrðu felldir niður við árslok 2015 í því skyni að auka ráðstöfunartekjur heimila og stuðla að aukinni verslun á Íslandi.
Það eru ýmis rök sem hníga að niðurfellingu tolla á tímum sívaxandi alþjóðaviðskipta. Tollar hafa í eðli sínu hamlandi áhrif á viðskipti milli landa og draga úr þeim þegar á heildina er litið. Samkeppnisstaða milli innlendra og erlendra aðila skekkist og neytendur greiða hærra verð en ella, eins og augljóst er. Til dæmis er þess að vænta að innlend fataverslun eflist nokkuð á kostnað verslunar erlendis nái framangreind tillaga fram að ganga með jákvæðum áhrifum á íslenskan þjóðarbúskap. Það kannast eflaust allir tilheyrendur við að verslunin hefur kvartað mjög undan skakkri samkeppnisstöðu og er þar ekki síst verið að vísa í tollana. Verslun með fatnað hefur átt mjög undir högg að sækja á undanförnum árum og hafa verið vísbendingar um það í neyslukönnunum að sífellt aukinn hlutur innlendrar verslunar færist út fyrir landsteinana. Við vonumst til þess að endurheimta verslun inn fyrir landhelgina með þessum breytingum og efla þannig verslun og bæta hag neytenda hér heima fyrir.
Það er augljóst að niðurfelling tollanna mun hafa áhrif á smásöluverð þeirra vara sem hér um ræðir en þegar allt er saman tekið er þess að vænta að heildaráhrif breytingarinnar, niðurfellingar tolla, muni hafa áhrif til lækkunar á vísitölu neysluverðs um nálægt 1%. Þar af eru verðlagsáhrifin á næsta ári talin verða 0,5% og svo kemur þetta að fullu til framkvæmda og áhrifin að fullu eftir árið 2017 eða í upphafi árs 2017. Hér er augljóst að um er að ræða verulega drjúga búbót fyrir barnafjölskyldur sem og aðra sem sjá má á ýmsum dæmum sem birt eru á bls. 27 í því frumvarpi sem við ræðum hér.
Ég ætla að nefna það sömuleiðis hér að þessar breytingar koma í beinu framhaldi af breytingum okkar á vörugjaldakerfinu og með afnámi almennra vörugjalda og tolla á iðnaðarvörur höfum við náð einhverjum stærstu skrefum til einföldunar á neysluskattakerfinu á Íslandi sem náðst hafa í háa herrans tíð.
Áætlað tekjutap ríkissjóðs vegna lækkunar tolla er 2,5 milljarðar kr. á næsta ári að meðtöldum virðisaukaskatti en 5,7 milljarðar króna þegar breytingin verður að fullu komin til framkvæmda á árinu 2017. Þá er um að ræða mat á beinum tekjuáhrifum af tillögum frumvarpsins. Þar þarf hins vegar að hafa í huga að aðgerðin hefur ekki eingöngu neikvæð áhrif á virðisaukaskattstekjur ríkissjóðs, svo fremi sem hún leiðir til lægra verðlags sem eykur ráðstöfunartekjur heimila og í kjölfarið neyslu þeirra. Nettóáhrif niðurfellingarinnar á afkomu ríkissjóðs ættu því að verða mun minni til lengri tíma litið svo ekki sé talað um það hagræði sem hlýst af á fjölmörgum sviðum við grisjun þess frumskógar sem tollarnir eru.
Í þriðja lagi vil ég ræða um leigutekjur af íbúðarhúsnæði. Í frumvarpinu er lagt til að frítekjumark fjármagnstekjuskatts af leigutekjum manns af íbúðarhúsnæði verði hækkað úr 30% í 50%. Virk skattbyrði leigutekna mun þar með lækka úr 14% í 10%. Þessi breyting er liður í stuðningi ríkisstjórnarinnar við almennan leigumarkað og er tilgangurinn sá að stuðla að lækkun leiguverðs og aukningu framboðs á leiguíbúðum til lengri tíma búsetu. Verði frumvarpið samþykkt óbreytt mun fjármagnstekjuskattur leigusala af 200 þús. kr. mánaðarleigu lækka um 8 þús. kr. á mánuði, þ.e. 96 þús. kr. á ári.
Vert er að árétta að umrædd ívilnun snýr einungis að leigusamningum til lengri tíma en ekki skammtímaleigu sem alla jafna telst til atvinnurekstrartekna og er skattlögð í samræmi við það. Tekjuáhrif þessarar breytingar eru áætluð neikvæð um 400 millj. kr. en áhrifin koma hins vegar ekki fram fyrr en við álagningu ársins 2017. Það skýrist af því að leigutekjur eru skattskyldar með árs töf, þ.e. við álagningu opinberra gjalda árið 2017 vegna tekna sem aflað var á árinu 2016.
Í fjórða lagi er virðisaukaskattur og áfengisgjald. Í þessu frumvarpi er lögð til tilfærsla milli álagningar á virðisaukaskatti og áfengisgjaldi þannig að sala áfengra drykkja færist úr almennu 24% þrepi virðisaukaskatts í neðra þrep hans, þ.e. 11%, samhliða því sem áfengisgjaldið verður hækkað á móti. Tilgangurinn með þessari breytingu er fyrst og fremst sá að því sem næst öll skattskyld sala veitingahúsa verði í sama virðisaukaskattsþrepinu. Þar með ættu skattskil þeirra að verða einfaldari og skilvirkari jafnframt því að draga ætti úr þeim mögulega ávinningi sem þessi starfsemi hefur nú til að hagræða í álagningu við verðlagningu og hafa þannig áhrif á skilaskyldan virðisaukaskatt.
Það hafa komið fram skýrslur á undanförnum árum um að menn hafi verið að hagræða töluvert í þessu efni og kokka svolítið í bókunum og þannig verði ríkið af talsvert háum fjárhæðum. Þessi breyting er hugsuð til þess að gera slíkt framferði erfiðara. Samanlögð áhrif tilfærslunnar verða lítillega til lækkunar á tekjum ríkissjóðs en það er þó mjög óveruleg lækkun. Til lengri tíma litið ættu tekjur af virðisaukaskatti af áfengi og áfengisgjaldi að aukast vegna bættra skila. Verðlagsáhrifin eru mjög óveruleg í samræmi við það sem ég hef hér sagt.
Í fimmta lagi vil ég hér ræða um vörugjald á bílaleigubifreiðar. Undanfarin ár hefur lækkun á vörugjaldi við kaup á bílaleigubílum sætt vaxandi gagnrýni, ekki síst í ljósi þess að greinin nýtur verulega góðs af hinum mikla straumi erlendra ferðamanna til landsins. Forsaga þessarar ívilnunar nær allt aftur til ársins 2000 og var tilgangur hennar að styðja við uppbyggingu greinarinnar sem þá var í mikilli lægð. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og þörf fyrir stuðning af þessu tagi orðin önnur og minni. Það sést ekki hvað síst í þeirri miklu fjölgun bílaleigubifreiða sem fluttar hafa verið til landsins á undanförnum árum og notið þessarar ívilnunar. Sem dæmi nam fjölgunin frá öllu árinu 2010 rúmlega 300% miðað við innfluttan fjölda í fyrri hluta ágústmánaðar í ár, sem sagt 300% fleiri bílar fram í ágúst á þessu ári en allt árið 2010. Það þýðir að sú ívilnun sem bílaleigur hafa notið vegna lækkunar vörugjalda samkvæmt undanþáguflokki nemur um 327% hærri fjárhæð í lok ágúst 2015 en allt árið 2010.
Gagnrýni á þetta ívilnunarkerfi hefur einnig komið fram í skýrslum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og OECD sem lagt hafa til að lækkunarheimild vörugjalds til handa bílaleigubílum verði afnumin. Bent er á að lækkunin sé ónauðsynleg og brjóti gegn þeirri meginreglu að álagningarhlutfall vörugjalda af bifreiðum haldist í hendur við magn koltvísýrings í útblæstri þeirra. Er lækkunarheimildin talin fela í sér að atvinnugreinum sé mismunað auk þess sem grafið sé undan hvötum til að draga úr koltvísýringsútblæstri. Jafnframt er gagnrýnt að lækkunin sé háð því skilyrði að bifreið þurfi einungis að vera í eigu bílaleigu í 15 mánuði eftir nýskráningu en eftir þann tíma megi selja hana án þess að til endurgreiðslu lækkunarinnar komi. Er talið að með þessum stutta eignarhaldstíma, að teknu tilliti til meðalaldurs fólksbifreiða, sé skapaður hvati fyrir bílaleigur til að beina sjónum sínum að bílasölu í auknum mæli sem aftur skekki samkeppni á bílasölumarkaði og sömuleiðis gagnvart fyrirtækjum sem bjóða upp á fjármögnunarleigu fólksbifreiða.
Þegar hafa verið tekin ákveðin skref til lækkunar á þessari ívilnun, m.a. í upphafi þessa árs þegar hámarksstuðningur fór úr 1 millj. kr. á hverja bifreið niður í 750 þús. kr. Í þessu frumvarpi er lagt til að ívilnunin verði afnumin í tveimur áföngum, þ.e. 1. janúar næsta árs og 1. janúar 2017. Í fyrra áfanganum verði hámarksstuðningur á hverja bifreið lækkaður úr 750 þús. kr. í 350 þús. kr. samhliða því sem leyfisgjald til að njóta lækkunar á vörugjaldi samkvæmt undanþáguflokki er lagt af. Leyfisgjaldið sem er eins konar ígildi vörugjalds hefur sætt nokkurri gagnrýni og hefur meðal annars verið bent á að þrep gjaldsins og fjárhæðir komi misjafnlega niður á bílaleigum eftir stærð auk þess sem gjaldið hindri aðgang að atvinnugreininni. Jafnframt er lagt til að lágmarkseignarhaldstími bifreiðar til að njóta lækkunar verði lengdur úr 15 mánuðum í tvö ár. Í seinni áfanganum, þ.e. frá og með 1. janúar 2017, mun umrædd ívilnun á vörugjaldi falla brott og með því verða kaup á bílaleigubifreiðum skattlögð með sama hætti og kaup einstaklinga á fólksbifreiðum til eigin nota.
Tekjuáhrif þessara breytinga eru talin verða um 600 millj. kr. í auknum tekjum fyrir ríkissjóð á næsta ári og 1,9 milljarðar kr. árið 2017 eða 2,5 milljarðar kr. þegar ívilnunin er að fullu horfin og eru þá áhrif af auknum virðisaukaskattstekjum talin með. Þess er ekki að vænta að aðgerðin hafi mikil áhrif á verð gagnvart innlendum neytendum og þar með á vísitölu neysluverðs þar sem viðskiptavinir bílaleiga eru að uppistöðu til erlendir ferðamenn.
Auðvitað er ekki hægt að fullyrða mikið um þessi efni. Það er staðreynd að bílaleigurnar hafa vaxið mjög að umfangi samhliða því að stóraukinn fjöldi erlendra ferðamanna hefur komið til landsins. Ég vil nefna það undir lok þessa kafla ræðu minnar að ég tel að á margan hátt hafi tekist vel til með ívilnunarkerfið. Okkur hefur auðnast að endurnýja bílaflotann töluvert mikið, bílaleigurnar eru mikilvægur hlekkur í keðju þeirrar þjónustu sem erlendir ferðamenn þurfa að njóta á landinu og við reynum með því að láta þessar breytingar taka gildi yfir tíma að taka tillit til þeirra sjónarmiða sem bílaleigurnar hafa komið fram með um að þær þurfi nauðsynlegan aðlögunartíma. Ég vænti þess að í þinglegri meðferð muni bílaleigur halda því fram að þær þurfi enn lengri aðlögunartíma og beini því til nefndarinnar að taka það allt til vandlegrar skoðunar, en ég tel að við eigum að einfalda kerfið, draga úr undanþágum og sérkjörum og frekar þá að beina sjónum okkar að því að lækka almenna vörugjaldið fyrir hinn almenna neytanda í landinu í stað þess að hafa það gjald tiltölulega hátt og vera með mjög mikla afslætti fyrir bílaleigur. Færum okkur úr afsláttarkerfi og beinum sjónum okkar frekar að því hver vörugjöldin eru fyrir allan almenning.
Í sjötta lagi vil ég nefna niðurfellingu/undanþágu virðisaukaskatts við innflutning og skattskylda sölu rafmagns-, vetnis- eða tengiltvinnbifreiða. Í stuttu máli er gert ráð fyrir að tímabundin heimild til að fella niður virðisaukaskatt og telja til undanþeginnar veltu fjárhæð að ákveðnu hámarki við innflutning og skattskylda sölu rafmagns-, vetnis- eða tengiltvinnbifreiða verði framlengd um eitt ár með sömu rökum og verið hafa notuð hingað til. Ég ætlaði að segja aðeins um þetta atriði, fyrir utan það að við áætlum að þetta muni hafa áhrif til þess að lækka tekjur ríkissjóðs um 200 milljónir miðað við það sem annars hefði orðið ef undanþágan hefði runnið út, að ég tel að komið sé að því að við skoðum aftur heildarumhverfi vörugjalda, þar með talið vörugjalda á eldsneyti fyrir bifreiðar í landinu og komum aftur að umræðu um hvernig við getum náð þeim markmiðum sem við viljum setja okkur, t.d. fyrir umhverfisvæna bíla, eins og þá sem ég nefni hér. Norðmenn hafa farið þá leið að setja sér markmið um tiltekið hlutfall rafbíla í bílaflota sínum og fram að því marki vilja þeir nota afslætti og hvatakerfi, en eftir að því hlutfalli er náð hyggjast þeir setja bílana í almenna kerfið. Við þurfum að ræða hvað bílarnir eiga að leggja til við að fjármagna samgöngukerfið í landinu, en aukinn fjöldi rafbíla sem ekki nota eldsneyti tekur þá minni þátt í fjármögnun samgangna í landinu. Bifreiðagjöldin ein og sér finnst mér að megi skoða. Er rétt hjá okkur að vera með lægri álögur á dísil en bensín? Það liggur fyrir í dag að dísill sótar meira en bensínið en við höfum til skamms tíma gengið út frá því að dísill sé minna mengandi. Það er kannski ekki alveg jafn einfalt og það virðist við fyrstu sýn og kannski er ekki rétt að einblína á koltvísýringinn. Þegar sótið kemur inn í myndina kann að vera að það sé ekki rétt ástæða sem við höfum gengið út frá fyrir því að hafa lægri álögur á dísil. Allt þetta samanlagt mundi ég vilja skoða ásamt umhverfisráðuneytinu og innanríkisráðuneytinu og taka saman reynsluna af því kerfi sem við höfum búið við og leiðir til þess að ná þeim markmiðum sem við viljum setja okkur með breytingum á umhverfinu. Það þarf auðvitað að gerast með fyrirsjáanlegum hætti og í góðu samráði við greinarnar þannig að það hafi ekki neikvæð áhrif á markaðina hér heima. En ég tel tímabært að skoða þessa hluti alla.
Við erum sem sagt að leggja það til varðandi rafbílana að við viðhöldum og framlengjum fyrirkomulagið um eitt ár. Ég mun skipa starfshóp til að fara ofan í þessi mál og óska eftir aðkomu umhverfis- og innanríkisráðuneytisins vegna samgönguhlutans að því.
Um krónutölu, skatta og gjöld er lagt til að olíugjald, almennt og sérstakt kílómetragjald, almennt og sérstakt bensíngjald, kolefnisgjald, bifreiðagjald — þið heyrið að þetta er ekki lítil upptalning, allt er það hluti af því gjaldakerfi sem ég nefndi áðan — og vörugjald á tóbak hækki um 2,5% frá og með næstu áramótum í takti við verðbólgumarkmið Seðlabankans. Við gáfum út yfirlýsingu undir lok árs 2013 um að við mundum ekki hækka þessi gjöld umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Þessi hækkun er örlítið undir verðlagsforsendu fjárlagafrumvarpsins sem er 3% og má segja að með því höldum við aftur af gjaldskrárhækkunum. Það er viðleitni okkar til að halda verðlagi eins lágu og mögulegt er og það er ljóst að gangi verðlagsforsendur eftir sjáum við verðlagsáhrif draga úr raungildi þessara gjalda á næsta ári. Hækkunin mun skila ríkissjóði samanlagt 900 millj. kr.
Barnabætur og vaxtabætur. Í frumvarpinu er að finna tvær breytingar á lagaákvæðum um barnabætur. Annars vegar er lagt til að viðmiðunarfjárhæðir verði hækkaðar um 3% frá því sem þær voru á þessu ári með það fyrir augum að viðhalda raungildi þeirra. Hins vegar er sú tillaga að heimild til skuldajöfnunar barnabóta á móti opinberum gjöldum og vangreiddu meðlagi verði varanlega felld brott, en heimildin hefur verið óvirk frá árinu 2009 með bráðabirgðaákvæðum. Áætlað er að útgjöld ríkissjóðs vegna barnabóta muni aukast um 315 milljónir frá því sem ella hefði orðið.
Jafnframt er lagt til að tímabundin hækkun á vaxtabótum, sem hefði að óbreyttu fallið niður um næstu áramót, verði framlengd um eitt ár enn. Gert er ráð fyrir að ákvæðið komi til framkvæmda við ákvörðun á fyrirframgreiðslu vaxtabóta og við álagningu opinberra gjalda á árinu 2016 og munu því reiknireglur og viðmiðunarfjárhæðir vaxtabótakerfisins haldast óbreyttar milli áranna 2015 og 2016. Ástæðan er sú að nú er unnið að endurskoðun á húsnæðisstuðningi stjórnvalda á ýmsum sviðum með það að markmiði að samræma hann sem kostur er og er þar horft meðal annars til ólíkra búsetuforma. Allt mun það mögulega hafa áhrif á vaxtabótakerfið og er því ástæða til að framlengja þetta bráðabirgðaákvæði eins og við höfum gert undanfarin ár.
Ég er þá kominn að mikilvægum en smærri efnisatriðum frumvarpsins. Ég hef hér farið yfir það helsta og stóru kaflana í frumvarpinu og ætla að leyfa mér að staldra aðeins styttra við í öðrum köflum. Varðandi útsvarið munum við framlengja tímabundna hækkun hámarksútsvars. Það hefur tengst málefnum fatlaðra og á meðan ekki hefur fengist endanleg niðurstaða í fjárhagsleg samskipti vegna yfirfærslu á því málefnasviði til sveitarstjórnarstigsins er rétt að framlengja þá hækkun.
Varðandi virðisaukaskattsskyldu fólksflutninga eru lagðar til lagfæringar á lögum um virðisaukaskatt í beinum tengslum við þær breytingar sem við höfum þegar lögfest um virðisaukaskattsskyldu fólksflutninga. Lagt er til að skipulögð ferðaþjónusta aldraðra verði undanþegin virðisaukaskattsskyldu til samræmis við undanþágur laganna að öðru leyti. Rétt er að árétta að samkvæmt gildandi lögum verða almenningssamgöngur, þ.e. fastar ferðir á ákveðinni leið innan lands samkvæmt fyrir fram birtri áætlun, sama hvort er á landi, í lofti, á legi eða skipulögð ferðaþjónusta fatlaðs fólks og skipulagður flutningur skólabarna sömuleiðis, allt þetta er undanþegið virðisaukaskatti frá og með 1. janúar 2016.
Í frumvarpinu er einnig gert ráð fyrir að úrskurðarvald í ágreiningsmálum um stimpilgjald verði fært frá ráðuneytinu til yfirskattanefndar. Sömuleiðis verða gerðar smávægilegar aðrar breytingar á því.
Starfsendurhæfingarsjóðirnir eru í frumvarpinu en lagt er til að við framlengjum ákvæði laga um tryggingagjald sem kveður á um að starfsendurhæfingarsjóðir fái ekki tekjur af almennu tryggingagjaldi á árinu 2016. Miðað við núgildandi tryggingagjaldsstofn mundi 0,13% hlutdeild fela í sér 1,4 milljarða kr. framlag úr ríkissjóði á ári. Það ákvæði sem ég nefni hér að verði framlengt hefur verið í gildi fyrir árin 2013–2015. Í staðinn fyrir að bráðabirgðaákvæðið falli niður er gert ráð fyrir að sjóðirnir fái 650 millj. kr. framlag á árinu 2016 í samræmi við samkomulagið sem gert var um það.
Við erum með gjald vegna kostnaðar við rekstur Fjármálaeftirlitsins. Það er í samræmi við lög um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
Greiðsla kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara. Við leggjum til að hlutfallið af álagningarstofni gjaldskyldra aðila lækki úr 0,0148% í 0,00491%, en gjaldinu er ætlað að standa undir rekstri umboðsmanns skuldara. Er þá miðað við að fjárheimildir umboðsmanns skuldara vegna rekstrarársins 2016 verði samtals 157,2 millj. kr. Það er til samræmis við rekstraráætlun stofnunarinnar sem gerir ráð fyrir að umfang hennar verði fjármagnað með þessu. Rekstraráætlun stofnunarinnar gerir ráð fyrir því að þetta framlag, ásamt uppsöfnuðum höfuðstól frá fyrra ári, eigi að standa undir umfanginu.
Almannatryggingar eru nefndar í frumvarpinu. Gert er ráð fyrir því að fjárhæð frítekjumarks vegna atvinnutekna örorkulífeyrisþega við útreikning tekjutryggingar og heimilisuppbótar verði sú sama á árinu 2016 og á þessu ári með framlengingu á bráðabirgðaákvæði. Frítekjumarkið er nú 1.315.200 kr. sem jafngildir 109.600 kr. á mánuði. Verði það ekki framlengt mun frítekjumark örorkulífeyrisþega vegna atvinnutekna lækka mjög verulega.
Lagt er til að gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra hækki um 3% á næsta ári í samræmi við spá Hagstofu um verðbólgu milli áramóta árið á undan fjárlagaárinu. Þannig verður gjaldið 10.464 kr. á hvern gjaldanda við álagningu opinberra gjalda á næsta ári vegna þessa árs. Áætlað er að sú hækkun skili ríkissjóði aukalega 55 milljónum en hins vegar er gert ráð fyrir því í fjárlagafrumvarpinu að veitt verði jafn mikil hækkun útgjaldaheimildar vegna verðlagsbreytinga þannig að áhrifin af þessum ráðstöfunum á afkomu ríkissjóðs verði engin.
Við erum svo með nokkra aðra liði. Ég þarf að fara hratt yfir sögu tímans vegna. Framlag til þjóðkirkjunnar breytist í samræmi við sérstakt samkomulagi íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar og hækkar um 72,7 millj. kr. Sömuleiðis lækkar framlag ríkissjóðs til Kristnisjóðs.
Varðandi rekstrarkostnað hjúkrunarrýma og kostnaðarþátttöku heimilismanna er gert ráð fyrir að bætt verði nýju ákvæði til bráðabirgða við lög um málefni aldraðra til að koma í veg fyrir að kostnaðarþátttaka heimilismanna aukist við það að tengingar við tekjur maka voru afnumdar.
Ég leyfi mér að vísa til frumvarpsins varðandi breytingar á sóknargjöldum. Lögboðið framlag til sókna þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga breytist að öllu jöfnu í samræmi við áætlaða breytingu á meðaltekjuskattsstofni einstaklinga 16 ára og eldri. Nú er hins vegar, eins og í tengslum við fjárlög undanfarinna ára, með breytingu á lögum um sóknargjöld gert ráð fyrir að fastsetja fjárhæð sóknargjalda í samræmi við áform innanríkisráðuneytisins um að draga til baka hluta af aðhaldskröfum til trúfélaga og safnaða í fjárlögum fyrri ára.
Ég þarf að hlaupa hér hratt yfir sögu og staldra ekki lengi við Framkvæmdasjóð ferðamannastaða sem verið hefur með mikið laust umframfjármagn og fær þess vegna ekki viðbótarfé í því frumvarpi til fjárlaga sem við höfum nýlega rætt. (Forseti hringir.) Í þessu frumvarpi erum við aðeins að gera upp aðhaldskröfu fyrri ára. Ég ætla að nefna það alveg í blálokin að þær ráðstafanir sem lagðar eru til í þessu frumvarpi gera ráð fyrir að afkoma ríkissjóðs dragist saman um um það bil 8 milljarða kr. sem hefði verið að óbreyttu. Það eru 8 milljarðar sem fara til góðra mála út í samfélagið í auknar ráðstöfunartekjur heimilanna að langmestu leyti.