145. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2015.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2016.

2. mál
[14:51]
Horfa

Vilhjálmur Bjarnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir framsögu í þessum tekjuöflunarhluta fjárlaganna. Í IV. kafla frumvarpsins er fjallað um breytingu á tollalögum þar sem verið er að afnema tolla á ýmsum vörum og vöruflokkum en þó með gildistöku á hluta varanna 1. janúar 2017. Telur hæstv. fjármálaráðherra ekki eðlilegt að klára þetta mál þar sem það er í rauninni sáralítið sem stendur eftir, það eru vörur frá Tævan, það eru vörur frá Bandaríkjunum, það eru vörur frá Japan? Annað af þessum raftækjum er komið undir fríverslun, vegna þess að raftækin frá Evrópu bera engan toll, fríverslunarsamningur við Kína, enginn tollur. (Forseti hringir.) Það er afskaplega lítið eftir. Er ekki rétt að stíga þetta skref til enda?