ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2016.
Herra forseti. Ég vil í fyrsta lagi minna á að það var eftir að ríkisstjórnin kynnti áform sín um lækkun tekjuskatts í skrefum sem kjaraviðræður á almennum markaði kláruðust. Það var þegar forsvarsmenn þeirra höfðu fengið í hendurnar yfirlýsingu okkar í þessu efni sem þeir töldu sig geta sannfært bakland sitt um að nú væri það komið í hús sem hægt væri að ná í þessari lotu. Það var verulega mikilvægt innlegg inn í það að loka kjarasamningum fyrr á þessu ári, sérstaklega vegna þess að í þessari lotu voru hækkanirnar langmest til lægri launahópanna en skattkerfisbreytingarnar lyfta síðan undir með millitekjuhópunum. Umfangið er ekki mikið. Það skiptist í fyrsta lagi á tvö ár og er í sjálfu sér tiltölulega léttvægt ef við berum það saman við þær miklu launahækkanir sem samið var um yfir það þriggja ára tímabil sem við ræðum hér um. (Forseti hringir.) En þær skipta þó máli. Ég rakti það í máli mínu áðan hversu mjög ráðstöfunartekjur (Forseti hringir.) dæmigerðra hópa mundu vaxa. Maður hlýtur að spyrja sig á endanum: Hvenær var tímapunkturinn fyrir skattalækkun, af því að fyrir stuttu síðan var rétti tíminn (Forseti hringir.) til að hækka skatta samkvæmt kenningu sumra? Nú er allt í einu orðið of seint að lækka þá. Hvenær var tímapunkturinn til að lækka þá?