145. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2015.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2016.

2. mál
[14:59]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það kemur mér á óvart að hæstv. fjármálaráðherra skuli um fjármál ríkisins lifa eftir kennisetningunni „svo skal böl bæta að benda á annað verra“. Ég hef alltaf talið hæstv. fjármálaráðherra vera mjög gætinn mann og ætla í sjálfu sér ekki að breyta þeirra skoðun minni núna, ekki alveg strax a.m.k. En hæstv. fjármálaráðherra boðar eðlilega að hann ætli að standa við það sem stóð í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Var það ekki tekjuskattslækkun upp á 3,3%, eitthvað svoleiðis, þegar kemur að lokum kjörtímabilsins? Ja, það er ansi mikill eldiviður inn í þann mikla hita sem við stefnum í í efnahagslífinu.

Hér hefur verið samfelldur hagvöxtur allar götur síðan á miðju ári 2010 og hefur þar nánast allt gengið eftir það sem menn teiknuðu upp þá. Það liggur alveg ljóst fyrir að hér verður gríðarlega mikil þensla enda er það mikilvægt að Seðlabankinn og ríkisstjórnin stefni í sömu átt. Ef það er þannig að Seðlabankinn og Samtök atvinnulífsins eru sammála, sem er ákaflega sjaldgæft, um að þetta sé kannski ekki rétti tíminn til að standa við þessar yfirlýsingar, (Forseti hringir.) veldur það ekki hæstv. fjármálaráðherra svolitlum ugg?