ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2016.
Herra forseti. Það er þakkarvert þegar stjórnarþingmenn taka þátt í umræðunni um frumvörp ríkisstjórnarinnar sem hér eru sett fram. Hv. þingmaður leggur mikið upp úr því að þær tekjuskattsbreytingar sem verið er að gera núna með hækkun skattþrepa feli í raun og veru ekki í sér aukinn ójöfnuð eins og við höfum haldið fram, þingmenn stjórnarandstöðunnar.
Það er nú engu að síður staðreynd ef maður skoðar töfluna á bls. 12, þar sem sýnd eru áhrif þessara breytinga á tiltekna tekjuhópa, að sá sem er með 1 millj. kr. á mánuði fær þrefaldan ávinning á við lágtekjumann sem er með 300 þús. kr. á mánuði í krónum talið. Milljón króna maðurinn fær 3 þús. kr. lækkun þegar 300 þúsund króna maðurinn fær þúsund kr. lækkun og síðan er 11–12 þús. kr. lækkun á þá sem eru með í kringum 700 þús. kr. Það er jöfnuðurinn sem hv. þingmaður talar um sem hljótist af þessum breytingum.
Við erum með velferðarkerfi í mjög miklum vanda. Við erum með menntakerfi í alvarlegum þrengingum. Það eru komnar aðgangstakmarkanir að framhaldsskólum landsins. Við erum með heilbrigðiskerfi þar sem er alvarlegur atgervisflótti úr landi, heilbrigðiskerfi sem við getum sagt að sé að þrotum komið. Á sama tíma leggur ríkisstjórnin fram frumvarp um breytingar á lögum um breytta ráðstöfun á 15 milljörðum kr. sem standa út af miðað við forsendur síðustu fjárlaga og forgangsverkefnin sem sett eru inn í þær breytingar snúa að því að auka ójöfnuð í samfélaginu, búa í haginn fyrir þá sem betur mega sín á kostnað lágtekjufólks.