ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2016.
Frú forseti. Hæstv. fjármálaráðherra getur nú ekki kvartað undan sínum hlut. Hér hefur einn af helstu kardínálum Samfylkingarinnar flutt ræðu sem að meginhluta til var skjall og lof um margvíslegar breytingar í frumvarpinu.
Ég tek alveg undir það sem hv. þingmaður sagði um breytingarnar á áfengisgjaldinu og umbúnaði þess. En gerir hv. þingmaður sér grein fyrir því — og ég segi þetta í ljósi þess að hann er annálaður bindindismaður a.m.k. á tóbak — að með þessu er verið að koma í gegn raunlækkun á tóbaksgjaldinu? Það er einungis fært upp miðað við 2,5% verðlagsbreytingar en forsendur fjárlagafrumvarps eru hins vegar 3% og svo eru margir sem spá miklu meiri verðlagsbreytingum.
Hvað segir hv. þingmaður um þetta?