ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2016.
Hæstv. forseti. Ég held að hv. þingmaður hafi algjörlega misskilið mig. Ég er auðvitað ekki að tala um að menn eigi ekki að taka þátt í kostnaði við samfélagið. Allir eiga að borga skatta. Allir eiga að leggja til samfélagsins en það er auðvitað ekki þannig að það séu sjálfkrafa auknar tekjur til að nýta í þau velferðarmál sem við öll viljum með því að skattleggja endalaust, skattleggja sem mest, af því að við þurfum alltaf meira. Það er alveg sama hvað skattarnir hefðu verið háir hér, alltaf eru tillögur um eitthvað meira af því að við þurfum alltaf að gera eitthvað meira. En það eykur ekki tekjur ríkissjóðs og hefur ekki gert því að það eru auðvitað takmörk fyrir því hvað borgar sig að hafa skatta háa.
Ákvörðun um að hækka skatta — slíkar ákvarðanir hafa áhrif. Þær hafa áhrif á fjárfestingar, öll óvissa skiptir máli. Það sem við þurfum að gera, til að baka brauðið, er að einhver vilji skapa verðmæti. Það vill enginn skapa verðmæti ef hann getur ekki verið í traustu og einföldu skattkerfi, að hann hafði nokkurn veginn vitneskju um það fram í tímann hvað muni gerast. Þetta skiptir mál.
Ég er ekki að tala um að menn eigi ekki að borga skatta og ég þoli það raunverulega ekki þegar menn koma sér undan því. Við þurfum öll að taka þátt í þessu. En okkur greinir á um hvaða leið er best til að auka tekjur ríkissjóðs, auka þar með velferð og líka að einkaaðilar geti átt möguleika á að leggja sitt til jafnvel með öðrum hætti en í beinum sköttum. En auðvitað eru það alltaf þeir sem eru tekjuhæstir sem borga hæstu skattana, það er eðli málsins samkvæmt í hlutfallskerfi okkar.