ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2016.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þessar ábendingar. Þetta frumvarp er stórt, það er mjög efnismikið og það er kannski flókið að fara yfir öll efnisatriðin. Ég átti fullt í fangi með það í framsöguræðu minni. Ég ætla aðeins að bæta við umræðuna um leigumarkaðinn.
Ég er sammála hv. þingmanni að það er mjög ákjósanlegt að fólk hafi raunverulegt val um það hvernig það vill haga húsnæðismálum sínum. Þó tel ég að það sé sérstaklega mikið til þess vinnandi að stjórnvöld geri ungu fólki kleift að eignast eigið húsnæði og þá er ég ekki síst að vísa til þess að í þeim löndum þar sem eigið húsnæði hefur frekar orðið valkosturinn fyrir fólk yfir starfsævina sýnir það sig að eiginfjárstaða heimilanna verður mun betri við lok starfsævinnar.
Í löndum þar sem þróast hefur mjög djúpur og almennur leigumarkaður, eins og t.d. í Þýskalandi, eru allt of margir sem koma inn á lífeyrisárin, eftir að hafa leigt í áratugi, með lága eiginfjárstöðu. Það virðist sem svo að fólk nýti viðbótarráðstöfunarfé sitt, ef eitthvert myndast við það að vera frekar á leigumarkaði en vera að borga vexti vegna húsnæðis, eða leggja mikið á sig til að eiga fyrir útborgun í húsnæði, það virðist sem viðbótarsvigrúmið sé ekki nýtt í annað sparnaðarform.
Þar sem húsnæðisverð hefur tilhneigingu til að hækka með hagvexti yfir tíma hefur almennt myndast gríðarlega mikil eign hjá þeim sem hafa valið, má segja, eigið húsnæði sem hluta af langtímasparnaði sínum. Mér finnst að þetta sé nauðsynlegur hluti umræðunnar um húsnæðisstefnu í hverju landi og eru ein rökin fyrir því að ég tel að stjórnvöld eigi að gera það sem þau geta á hverjum tíma til að greiða fyrir því (Forseti hringir.) að fólk geti komið sér þaki yfir höfuðið og eignast eigið húsnæði.