þjóðarátak um læsi.
Virðulegi forseti. Vegna orða hv. þingmanns vil ég segja að það sem hér er átt við er þetta: Börn sem ekki geta lesið sér til gagns hafa ekki sömu tækifæri til menntunar eins og þau sem það geta. Menntun er aflvaki efnahagslegra framfara og efnahagslegra tækifæra í nútímasamfélögum. Börn sem koma upp úr grunnskólunum og geta ekki lesið sér til gagns eiga á hættu að lenda í mun erfiðari stöðu en þau sem það geta. Það er það sem ég á við. Það er æpandi að horfa á þá skiptingu — já, stéttaskiptingu sem myndast einmitt vegna þessa. Við eigum að leiðrétta það og við eigum tryggja að börnin okkar, við lok grunnskólagöngunnar, eigi sem jöfnust tækifæri í lífinu.
Ég vil líka undirstrika það, virðulegi forseti, að það á alls ekki að vera svo og væru mikil mistök að láta PISA-prófin og niðurstöður þeirra stýra skólastarfi á Íslandi, en það á að horfa til þeirra niðurstaðna sem úr þeim koma hvað varðar afmarkaða þætti eins og læsi. Ég vek athygli á því að við höfum lækkað verulega í þeim mælingum frá árinu 2000 þegar við tókum fyrst þátt í þessu. Við vorum í efri hluta hóps þjóða sem voru vel yfir meðallagi en nú erum við komin langt undir meðallag.
Virðulegi forseti. Það er rétt sem hér er sagt að þetta er margþætt mál og flókið. Það er einmitt þess vegna sem meðal annars Heimili og skóli skrifa undir þetta samkomulag sem ríki og sveitarfélög standa að, því að það sem gerist inni á heimilunum er svo mikilvægt. Það er ekki að ástæðulausu sem þau samtök eru fengin með okkur í þetta verkefni.
Síðan vil ég segja, virðulegi forseti, að auðvitað er ekki hér um eitthvert átak að ræða sem á að gera á einu ári í hendingskasti. Hér er lagt upp með fimm ára verkáætlun þar sem við ætlum að breyta ákveðnu vinnulagi og ákveðnu starfi til að auka líkurnar á því að börnin okkar nái að læra að lesa.
Af því að virðisaukaskattur var nefndur þá vil ég bara benda á að það eru engar tölur sem sýna að samhengi sé á milli virðisaukaskattsprósentunnar annars vegar og læsisniðurstaðna hins vegar, það er ekki svo. En ég vil benda á að ríkisstjórnin er til dæmis að auka framlög í Bókasafnssjóð höfunda úr því sem var árið 2012, 23 milljónir í 70 milljónir núna.
Virðulegi forseti. Það er rétt sem hér er sagt, þetta er flókið mál, þetta er mikilvægt mál. Það er ekki einhver ein aðferð við að leysa það en það sem við erum að gera núna er að (Forseti hringir.) leggja áherslu á þetta, ná góðri samstöðu og vekja athygli á því (Forseti hringir.) að við Íslendingar látum það ekki spyrjast um okkur að 30% drengjanna okkar (Forseti hringir.) geti ekki lesið sér til gagns og 12% stúlknanna. Það er alger skömm að því fyrir okkar samfélag.