landsskipulagsstefna 2015--2026.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér, eins og áður hefur komið fram, tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015–2026, en þetta mál er lagt hér fram í annað sinn. Fram kom fram í andsvörum mínum við hæstv. ráðherra að mér finnst það vera ljóður á ráði ráðherra og/eða ráðuneytisins að hafa ekki tekið tillit til þeirra athugasemda sem eru mjög málefnalegar og nánast að segja hafnar yfir vafa, eins og til að mynda þá sem fram kom frá Náttúrufræðistofnun Íslands varðandi flokkun landbúnaðarlands, en Náttúrufræðistofnun Íslands sér beinlínis um vistgerðarflokkun. Það er það sem fjallað er um í kaflanum um skipulagningu landbúnaðarlands og er bæði málefnalegt og eðlilegt. Mér hefði fundist til bóta ef ráðuneytið hefði náð að uppfæra tillöguna a.m.k. í samræmi við þær athugasemdir sem fram hafa komið.
Ég fagna í grundvallaratriðum framkomu málsins. Ég tel að það sé afar mikilvægt og það byggir á gildandi skipulagslögum sem sett voru á síðasta kjörtímabili eftir að ráðherrar allmargra flokka höfðu gengið þá þrautagöngu að mæla fyrir nýju skipulagslögum án þess að hafa erindi sem erfiði. Þá náðist loksins sú breiða, þverpólitíska sátt um löggjöfina að það lánaðist að setja hér ný skipulagslög, en ekki síður að ná því skrefi að búa til eðlilegan lagagrunn eða lagaramma utan um landsskipulagsstefnu, sem var fyrst og fremst verkefni sem vinna þurfti með sveitarfélögunum. Kom þar vel á vondan vegna þess að ég sjálf hafði þá verið varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og hafði haft miklar efasemdir um landsskipulag og settist svo í sæti skipulagsmálaráðherra og þurfti, ef svo má að orði komast, að leiða þennan ágreining allan saman í jörð. Ég vona að það hafi tekist vel til þó að við séum enn þá hugsi yfir því hversu vel verkfærið bítur síðan þegar við erum búin að koma því í gegnum þingið, vegna þess að það má eiginlega segja að stefnan sem slík sé í besta falli stefnuyfirlýsing stjórnvalda um það hvernig við viljum sjá skipulag þróast á landi og á strandsvæðum, en kannski minna um hvað gerist ef sveitarfélög kjósa að fara í aðrar áttir. Þessi stefna er ekki sett til höfuðs sveitarfélögunum og skipulagsgerð sveitarfélaganna er mjög skýrt römmuð inn í lögum eftir sem áður. Þess vegna er það langa samráðsferli sem hæstv. ráðherra gerði hér ágætlega grein fyrir mjög mikilvægt, þ.e. að við sjáum fyrir endann á því samráði og ég mundi vilja sjá þá stefnu kláraða frá Alþingi.
Ef við víkjum þá frekar að þeim efnisatriðum sem hér eru helst undir vil ég í fyrsta lagi ræða hér verkefni sem við þurfum að skoða í nefndinni. Það eru uppsetningar- og framsetningarmál, þ.e. um er að ræða kafla þar sem fjallað er um sjálfbært skipulag þéttbýlis og skipulagsgerð með tilliti til náttúruvár og umhverfisbreytinga. Þar eru kaflar sem eru nánast um það sama undir mismunandi yfirköflum sem þarf að samræma og síðan kemur í allt öðrum kafla umræðan um breytingu á sjávarborði í kjölfar loftslagsbreytinga sem ekki er fjallað um þar sem fjallað er um þau áhrif sem náttúruvá og loftslagsbreytingar hefur í för með sér í öðrum köflum. En þetta er meira handavinna og verkefni.
Ég vil taka undir það sem fram kom hjá hv. þm. Katrínu Júlíusdóttur varðandi þéttari byggð og varðandi innviðina og bæta aðeins við þær vangaveltur sem fram komu í ræðu hv. þingmanns, þ.e. um mikilvægi þess sem manni virðist vera að aukast ásmegin almennt í umræðunni, skilningurinn á því að innviðirnir séu þéttir, þ.e. að við séum ekki með innviði að því er varðar vegagerð, bílastæði, lagnir, veitumannvirki o.s.frv. upp um allar heiðar og síðan mjög gisna byggð, vegna þess að þessir innviðir eru greiddir úr sameiginlegum sjóðum. Þess vegna er mikilvægt fyrir samfélagið í heild að nýta fjárfestinguna vel með þéttri byggð. Það finnst mér sem betur fer vera meiri umræða um nú almennt í umræðunni um skipulagsmál í þéttbýli. Ég fagna því sérstaklega sem hér kemur fram og það er í góðu samræmi við bæði aðalskipulag Reykjavíkurborgar, en ekki síður svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins sem er mjög vel á veg komið og er í sama anda hér á þéttbýlasta svæðinu í landinu.
Í umsögnum um málið á fyrri stigum þess eða þegar það var lagt fram hér í fyrra, kemur mjög skýrt fram, bæði frá Náttúrufræðistofnun Íslands en ekki síður frá Landvernd, að textinn þurfi að kveða miklu sterkar að orði að því er varðar skipulag miðhálendisins og vernd víðernanna. Það held ég að sé okkar stærsta verkefni núna. Ég held í raun og veru að sú umræða sem verið hefur úti í samfélaginu um mikilvægi þess að draga varnarlínu um ósnortin víðerni þurfi að endurspeglast í umfjöllun Alþingis.
Ég vil segja það alveg skýrt að þegar ég lagði sjálf fram þingsályktunartillögu um landsskipulagsstefnu vorið 2013 var heldur ekkert sérstaklega skýrt kveðið að orði að því er varðar vernd miðhálendisins. En það er einfaldlega þannig að tíminn vinnur með víðernunum og tíminn vinnur með miðhálendinu. Ég hef um það vaxandi efasemdir að til að mynda rammaáætlun um nýtingu og vernd landsvæða eigi yfir höfuð að fjalla um þau svæði sem falla innan miðhálendislínunnar vegna þess að við séum hreinlega komin að þeim stað að það svæði eigi að vera hafið yfir vafa og það eigi að vernda fyrir öllum framkvæmdum, bæði orkuframkvæmdum, klossaðri vegagerð og raflínum. Mér hefur fundist sú umræða vera vaxandi út um allt samfélag. Landvernd veit það. Hún kallaði eftir svörum almennings út um allt samfélag og ég heyri raddir úr ríkisstjórnarflokkunum báðum — ég heyri raddir, þetta hljómaði ekki vel! — þ.e. Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum, um að mönnum þyki þetta vera orðið brýnt. Við heyrum að ferðaþjónustan talar um ósnortin víðerni sem ef til vill okkar mikilvægustu auðlind til grundvallar ferðaþjónustunni, þannig að þetta er orðin auðlind sem við verðum að gæta rétt eins og fiskveiðiauðlindin eða orkuauðlindirnar.
Ég held að það sé einsýnt að landsskipulagsstefna sem er nútímaleg og endurspeglar samfélagsumræðuna eigi að taka mjög djúpt í árinni og þar dugi ekki að segja, eins og fram kemur í kafla 1.1.1 í tillögu ráðherrans til þingsins, að mannvirki og umferð um hálendið skerði víðerni og önnur sérkenni og náttúrugæði hálendisins sem minnst. Það dugar ekki ef við ætlum að uppfæra það til nútímans, heldur þarf að segja mjög skýrt „nema brýna nauðsyn beri til“.
Við sem sitjum í hv. umhverfis- og samgöngunefnd erum með þetta verkefni í höndunum og líka ný náttúruverndarlög. Það spilar auðvitað allt saman.
Eins og ég kom aðeins að í andsvörum við hæstv. ráðherra þurfum við að samræma texta og við þurfum að samræma það sem talað er um hér og það sem talað er um í nýjum náttúruverndarlögum með því frumvarpi sem hæstv. ráðherra leggur vonandi fram á næstu dögum svo þessir textar tali saman, þannig að við séum búin að uppfæra það allt saman.
Ég vil að lokum segja almennt um þetta mál að ég tel að það sé til mikilla framfara. Mér finnst textinn um skipulag á haf- og strandsvæðum — og já, það er eitt sem boðað er á málaskrá hæstv. ráðherra sem er löggjöf um það skipulag og það þurfum við líka að láta tala saman, ef svo má að orði komast. En ég held að það sé allt saman til verulegra bóta. Kaflinn um búsetumunstur og dreifingu byggðar er í grundvallaratriðum verulega mikilvægt framlag og skipulag í dreifbýli sömuleiðis. En við þurfum að láta til okkar taka fyrst og fremst í því að tryggja vernd miðhálendisins í samræmi við framkomnar þingsályktunartillögur og umræðu í samfélaginu og almennan aukinn skilning á mikilvægi þess máls.