145. löggjafarþing — 8. fundur,  17. sept. 2015.

sjálfstætt eftirlit með starfsemi og starfsháttum lögreglu.

12. mál
[17:12]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Mér þykir auðvitað miður ef hv. þingmaður skynjar ekki hvað þetta er út af fyrir sig merkilegt, að hér er það uppreisnaraflið sem nýtur um þessar mundir langmests fylgis allra stjórnmálaflokka sem ber fram tillögu sem beinlínis er í anda lögreglunnar og byggir á ályktun frá Landssambandi lögreglumanna og hugmynd frá fyrrverandi lögreglustjóra í Reykjavík. Það eitt og sér er merkilegt og menn gætu lagt út frá því með ýmsum hætti, gætu t.d. velt því fyrir sér hvort uppreisnaraflið sé svona fljótt að þroskast að það sé þegar komið yfir miðjan aldur og sé í reynd búið að taka upp það sem gömlu flokkarnir báru áður fyrir brjósti. Það er merkilegt ef hægt væri að túlka það með þeim hætti en ég er nú ekkert að gera það sérstaklega.

Ég er eins og hv. þingmaður alinn upp í Sjálfstæðisflokknum þótt ég hafi kannski ekki verið alinn upp í lögreglubíl eins og hv. þingmaður en mér er mætavel kunnugt um það, frá æskuskeiði og síðar í pólitík, hversu mikla áherslu Sjálfstæðisflokkurinn og sjálfstæðismenn lögðu jafnan á það að bera fram óskir og kröfur og mál til stuðnings lögreglunni á Íslandi. Mér finnst það bara eðlilegt. En mér finnst merkileg þessi hlutverkaskipti sem hafa orðið og af því að við erum glöð á góðum degi og það er sól úti þá fannst mér í lagi að taka tíma þingsins til að draga þetta fram. Mér finnst þessi hlutverkaskipti, sem mér finnst hafa orðið hjá þeim tveimur glæsilegum þingmönnum sem ég horfi hér á, sögulega merkileg og tímanna tákn og kannski ná þau utan um kjarnann á því sem hefur verið að breytast í íslenskum stjórnmálum.