einkavæðing Landsbankans.
Það kemur í sjálfu sér ekkert á óvart að Samfylkingin tali fyrir ríkisbankanum og ríkisumsvifum á fleiri viðskiptasviðum en bankastarfsemi, það kemur ekki á óvart. Það er líka í anda samfylkingarstefnunnar að skipta reglulega um skoðun.
Samfylkingin stóð að baki tillögugerð um að Landsbankinn yrði seldur, að ríkið mundi selja hann, og gerði meira að segja ráð fyrir söluhagnaði til þess að fjármagna ný útgjöld á vegum ríkisins í þeim tilgangi.
Þessi umræða um að alls ekki megi selja banka sem gengur vel vegna þess að miklu betra sé að eiga hann og hafa afraksturinn — bíddu, í hvaða veröld búa menn eiginlega? Banki sem gengur vel selst á háu verði. Og það háa andvirði sem menn munu fá fyrir sölu á hlut ríkisins, á takmörkuðum hlut ríkisins í bankanum, verður notað í þágu góðs málefnis, að greiða upp skuldir, skuldir sem stofnað var til til þess að ríkið gæti eignast hlut í bankanum. Þetta er svona einfalt.
Hér eru ekki uppi tillögur um annað og það er ekki (Forseti hringir.) tillögugrein í fjárlagafrumvarpinu um annað en að losa um það sem er umfram 70%. Við erum stödd á þeim stað. Varðandi regluverkið, auðvitað munum við áfram þurfa að bæta (Forseti hringir.) regluverk um fjármálastarfsemi. Ég var ekki að segja að því verkefni væri lokið eða að ekki þyrfti að hafa augun opin (Forseti hringir.) fyrir regluverki fjármálamarkaðarins, en það er búið að gera gríðarlega miklar breytingar.