alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja að þakka fyrir þá umræðu sem hefur farið fram um þetta mál. Málið er lagt hér fram í annað sinn, eins margoft hefur komið fram. Umræðan endurspeglar í raun hvernig hún var þegar málið kom fyrst fram og fátt nýtt hefur komið fram í henni sem hefur kallað á sérstök viðbrögð. Ég vil þó reyna að svara nokkrum vangaveltum sem hafa komið upp og ef til vill ná að leiðrétta misskilning sem kann að hafa verið uppi.
Fyrst vil ég nefna og þakka þá hugulsemi og umhyggju sem felst í orðum þeirra sem hafa lýst yfir efasemdum um að stuðningur sé við þetta mál. Þetta er stjórnarfrumvarp og samþykkt í báðum þingflokkum stjórnarmeirihlutans. Ég efast ekki um að áhugi sé í stjórnarflokkunum um málið.
Ég vil líka koma því á framfæri að þegar menn gagnrýna vinnubrögðin í þessari vinnu þá er það þannig að 2013 var gerð ákveðin úttekt, rýni á þróunarsamvinnu, þegar við ákváðum að gerast aðilar að þessu DAC-samstarfi. Það komu ýmsar ábendingar fram þar sem leiddu til þess að við töldum skynsamlegt að endurskoða eða fara yfir það hvernig við stöndum að þróunarsamvinnumálum. Til þess fengum við hlutlausan utanaðkomandi sérfræðing, Þóri Guðmundsson, sem ég treysti fullkomlega og hélt að flestir treystu eftir áralangt og gott starf hans á þessum vettvangi. Hann fékk algerlega frjálsar hendur með þetta og skilaði inn mikilli skýrslu þar sem 40–50 tillögur eru lagðar fram. Þær tillögur sem ég ákvað að fara með inn í þetta frumvarp lúta eingöngu að skipulagi stofnunarinnar og ætla ég svo starfsmönnum ráðuneytisins og ÞSSÍ að fara yfir aðrar tillögur sem koma þar fram, sem eru margar áhugaverðar, þegar búið er að sameina. Þórir Guðmundsson skilaði skýrslunni þar sem lagðir eru til þrír mögulegir kostir. Hann mælir þó sérstaklega með einum og er það er sú leið sem er farin í þessu frumvarpi.
Það er ýmislegt sem kemur fram í skýrslu Þóris varðandi þetta. Sumt af því má finna í svörum við skýrslubeiðni sem kom frá þinginu og var að sjálfsögðu svarað. Þar eru meðal annars í níu liðum færð rök fyrir því af hverju það er faglegt að fara þessa leið. Það má finna í umræddri skýrslu.
Ég ætla að víkja örstutt að starfsmannamálunum áður en ég fer yfir í annað. Það kemur fram í frumvarpinu að öllum fastráðnum starfsmönnum verði boðin sambærileg störf. Við stöndum að sjálfsögðu við það og það verður gert. Síðan tekur sjálfsagt við ákveðið ferli ef starfsmenn þiggja það o.s.frv., þannig að það liggi allt fyrir. Auðvitað förum við eftir öllum þeim reglum sem um það gilda.
Umræðan hefur snúist að miklu leyti um forstöðumann stofnunarinnar og það undrar mig mjög að umræðan hafi ratað þangað. Í rauninni fannst mér sorglegt við upphaf þessarar umræðu á hvaða plan hún fór strax. Það hafa verið höfð uppi mjög stór orð um ráðherrann sem hér stendur og ýjað að og dylgjað um hug hans og þess háttar, en menn hafa gjarnan nefnt dylgjur í þessum stól. Ráðherrann er sakaður um hefndarhug gegn forstöðumanni, en honum er nú ekki verr við forstöðumann en svo að hann er í starfshópnum sem vinnur við útfærslu á sameiningunni, sá ágæti forstöðumaður. Það er líka undarlegt að ekki hefur verið spurt hvort komi til greina að nýta starfskrafta forstöðumannsins áfram. Því hefði verið einfalt að svara játandi. Það kemur að sjálfsögðu til greina.
Hvað forstöðumanninn varðar eru embættismenn, og gleymum því ekki að forstöðumaður er embættismaður, skipaðir til fimm ára. Um forstöðumanninn gildir í sjálfu sér annað en um hina venjubundnu fastráðnu starfsmenn, ráðningin er tímabundin. Það fylgdi því ákveðin lagaskylda að tilkynna forstöðumanninum núna að um endurráðningu yrði að ræða yrði þetta frumvarp samþykkt. Ég hef sagt það í þessum ræðustól, og því miður hafa alþingismenn greinilega ekki heyrt það, að nái frumvarpið ekki fram að ganga, sem ég vona að sjálfsögðu að verði ekki, verður staðan auglýst og þá er enginn sem bannar þessum ágæta manni að sækja um óski hann þess. Þetta er því allt gert í samræmi við ákveðin lög og reglur.
Svo hefur verið mjög undarleg umræða um það af hverju forstöðumaðurinn fór ekki með ráðherranum í heimsókn til Malaví. Ég spyr bara: Til hvers? Það er um ellefu manna starfslið á vegum Íslands í Malaví, mjög góður forstöðumaður á vettvangi, þannig að mér finnst þetta vera plan sem maður eigi ekkert að fara niður á.
Menn hafa verið að dylgja um ýmislegt og jafnvel gefið í skyn að í utanríkisráðuneytinu sé fólk sem kunni ekki neitt með þessi mál að fara. Ég vil taka fram að það er ekki síðra starfsfólk í utanríkisráðuneytinu í dag til að fjalla um þróunarmál en innan stjórnar ÞSSÍ. Í dag er það þannig að um 60% af þeim fjármunum sem fara í þróunarmál eru nú þegar inni í utanríkisráðuneytinu, þegar kemur að marghliða þróunarsamvinnu.
Talandi um það þá hafa menn einnig dylgjað um það að hugsanlega kunni starfsmenn ráðuneytisins að vera að ná sér í einhverja valdaþræði eða að þeir ágirnist fé eða að ráðherrann ágirnist fé sem er á vettvangi tvíhliða þróunarsamvinnu.
Til að rifja það upp fyrir þingmönnum sem muna það ekki alveg eru ákveðnar reglur sem gilda um það hvernig þessu fé er varið. Til dæmis er lögð fram ályktun sem Alþingi samþykkir um það hvernig því er svo skipt. Í dag er þetta um 60% og 40% í tvíhliða og marghliða og það er hvergi að finna neina tillögu um að því verði breytt í þeim gögnum eða í því frumvarpi sem hér er um að ræða.
Talað er um að þróunarsamvinnunefnd sé pólitísk nefnd. Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki þá umræðu vegna þess að við erum að tala um 15 manna nefnd og í henni eru einungis fimm alþingismenn, þar af eru væntanlega einungis þrír frá meiri hlutanum á hverjum tíma. Hitt er fólk úr háskólasamfélaginu, aðilar vinnumarkaðarins o.s.frv. Hvernig getur sú nefnd orðið pólitísk, það er þá alla vega ekki í þágu stjórnarmeirihlutans á hverjum tíma? Það minnir mig á eitt — 15. maðurinn er skipaður af ráðherranum, en það er einn maður.
Síðan hefur verið talað um jafningjarýnina og það er greinilega mikill misskilningur uppi um hana hér. Eins og ég sagði fór jafningjarýni fram 2013 eða þegar við vorum að fara inn í DAC-kerfið og er ráðgert að á næsta ári byrji slík vinna. En hv. þingmenn, niðurstöður hennar liggja ekkert fyrir innan sex mánaða eða í upphafi næsta árs, niðurstaðan er áætluð árið 2017. Þess vegna er ekki skynsamlegt að bíða eftir henni þegar við byggjum nú þegar á rýni sem fór fram 2013, sem m.a. segir að nauðsynlegt sé að skoða heildarskipulag, fyrirkomulag þróunarsamvinnu, eins og fram kom á þeim tíma.
Ég er búin að svara þessari ótrúlegu framsetningu með allar dylgjurnar í garð starfsmanna og ráðuneytisins o.s.frv. og því að ráðherra sé illa við starfsfólk.
Hér hefur aðeins verið talað um flutningsskylduna. Ég hef sagt að ég vilji gjarnan að það nái fram að ganga, ég verð að viðurkenna að það kann að vera eitthvað lagalegt sem stendur í vegi fyrir því en ég hefði viljað að starfsfólk gæti ákveðið hvort það færi inn í flutningsskylda pakkann eða væri utan hans. Ég veit að það eru starfsmenn sem vilja gjarnan komast inn í flutningsskylduna. Svo má heldur ekki gleyma því, hv. þingmenn, að það eru flutningar innan ÞSSÍ. Það eru útsendir starfsmenn á vegum ÞSSÍ á þeim útstöðvum sem við erum með í dag, hvort sem það er Úganda, Malaví eða Mósambík. Það er því ekki eins og þetta sé eitthvað nýtt. Ég vona svo sannarlega að hægt verði að bregðast við óskum starfsmanna þegar að þessu kemur.
Það hefur verið látið í veðri vaka að árangursmiðuð stjórn þekkist hvergi nema innan ÞSSÍ. Flestar þær stofnanir, ef ekki allar, sem utanríkisráðuneytið vinnur með í dag, marghliða, vinna eftir slíkum stöðlum og slíkum vinnubrögðum.
Talað var um friðargæsluna. Það er algjörlega rétt sem kom fram hér að þau störf eða verkefni eru ekki auglýst. Það eru ákveðin ástæða fyrir því. Oft er það þannig að bregðast þarf við strax, þú þarft að svara því daginn eftir hverja þú getur sent o.s.frv. En í staðinn er í gangi ákveðinn listi sem fólk sem hefur áhuga á þessu getur skráð sig á og í langflestum tilfellum, að ég held, er fólk tekið af listanum og þeir sendir sem hafa eitthvað fram að færa, hvort sem það er á sviði fjölmiðla, mannréttinda, jafnréttis eða hvernig það er. Þetta á sér sínar skýringar.
Hér kom líka fram áðan að verið væri að grauta saman verkefnum þróunarsamvinnu við önnur verkefni í ráðuneytinu. Þetta er náttúrlega eins rangt og vitlaust og mögulega getur verið þegar ráðuneytið rekur í dag öfluga þróunarsamvinnuskrifstofu og ætlunin er að samræma þetta allt saman.
Ég hafna því að sjálfsögðu að einhver sýndarrök séu fyrir sameiningunni. Eins og ég sagði áðan eru færð rök fyrir henni í níu liðum í það minnsta í þeirri skýrslu sem skilað var inn til alþingismanna. Hins vegar hefur umræðan hér því miður verið á undarlegu plani þar sem menn eru með dylgjur í garð starfsmanna ráðuneytisins og dylgjað er um hug ráðherra til þessa verkefnis o.s.frv. Ég hafna því að sjálfsögðu.
Síðan var einhver þingmaður, ég man ekki nákvæmlega hver það var, sem velti því fyrir sér hvort ráðherra mundi þola samanburð við aðra þingmenn þegar kæmi að árangri. Ég treysti mér að sjálfsögðu fullkomlega í það.
Ég vona svo sannarlega að þetta mál nái fram að ganga því að markmiðið er að efla og gera þróunarsamvinnu Íslands sterkari, skilvirkari og betri en hún er í dag. Það hlýtur að vera eitthvað sem allir vilja stefna að.