vinnubrögð í atvinnuveganefnd.
Virðulegur forseti. Hefst nú þetta leikrit enn og aftur um það mál af hálfu stjórnarandstöðunnar sem við vorum sammála um í þinginu á síðasta kjörtímabili að reyna að leiða ágreining um í jörð og koma á ákveðnu sáttaferli í þessu máli. Það var það sem þetta snerist um. (BirgJ: Takk fyrir það.)
Ef við ætlum að hafa þetta mál í sátt, virðulegur forseti, þá er alveg lágmark að farið sé eftir þeim lögum sem við settum. Það kom fram fyrir nefndinni mjög alvarlegur ágreiningur nokkurra aðila, þar á meðal Orkustofnunar, orkufyrirtækjanna og fleiri, um að ekki væri farið að lögum í vinnu verkefnisstjórnar. Er ekki eðlilegt að atvinnuveganefnd sem hafði málið til umfjöllunar taki það upp og fari ofan í það og geri það með fulltrúum ráðuneytanna á staðnum til þess að fara yfir það hvort við séum virkilega að gefa vitlaust upp í byrjun sem leiðir auðvitað til enn frekari ágreinings í framhaldinu?
Virðulegi forseti. Formaður verkefnisstjórnar staðfesti (Forseti hringir.) að það væri hans skoðun að farið hefði verið út fyrir ramma laganna í umfjöllun nefndarinnar á síðasta vetri, (Forseti hringir.) það hefði verið farið út fyrir ramma laganna. Getum við ekki sameinast um það hér að við viljum að minnsta kosti að það sé farið að lögum? (Forseti hringir.) Það er ekkert annað markmið (Forseti hringir.) af hálfu hv. atvinnuveganefndar í þessu en að (Forseti hringir.) reyna að auka sáttina (Forseti hringir.) um þá niðurstöðu sem kann að koma í framhaldinu, það sé farið að lögum (Forseti hringir.) sem Alþingi setur.