vinnubrögð í atvinnuveganefnd.
Virðulegi forseti. Ég hef ekkert út á fundarstjórn forseta að setja, en mér fyndist reyndar að hann hefði mátt minnast þess við upphaf þingfundar að í dag eru 30 ár síðan Vestnorræna ráðið var stofnað. Það er mikilvægt og merkilegt ráð sem við Íslendingar erum þátttakendur í.
Ég stakk upp á því í vor einu sinni undir liðnum um fundarstjórn forseta að við mundum syngja í upphafi þingfunda og vera svo í stuttri íhugun rétt á eftir. Ég ætla að stinga upp á því aftur. Mér finnst þetta frábær hugmynd. Ef þetta er það sem við þurfum að takast á við næstu vikurnar, þá guð hjálpi okkur öllum.