145. löggjafarþing — 13. fundur,  24. sept. 2015.

samþjöppun í mjólkurframleiðslu.

[13:31]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Mikil þróun og framfarir hafa verið í kúabúskap og mjólkurframleiðslu undanfarin ár. Búin hafa stækkað og tækniframfarir orðið miklar og mörg bú hafa tekið róbóta í sína þjónustu og er það ánægjulegt og mikilvægt að greinin geti þróast og vaxið svo hún geti orðið sem best samkeppnisfær við aukinn innflutning og aukið vöruúrval og þjónað neytendum sem best. Sá hluti búvörusamningsins sem snýr að mjólkurframleiðslunni rennur út í lok næsta árs og undirbúningur að gerð nýs samnings er hafinn. Í því ljósi vakna ýmsar spurningar um hvernig stuðningi við greinina verði háttað í nýjum búvörusamningi þar sem miklar breytingar hafa verið í greininni undanfarin ár.

Dæmi eru um mikla samþjöppun í mjólkurframleiðslu og í raun eru orðin til verksmiðjubú, t.d. í Flatey á Mýrum þar sem einkahlutafélagið Selbakki í eigu útgerðarfélagsins Skinneyjar-Þinganess á Höfn er að reisa stærsta fjós landsins með rými fyrir 300 kýr. Ætlunin er að tvöfalda mjólkurframleiðsluna úr 1 millj. lítra í 2 millj. lítra á ári. Ég spyr: Er eðlilegt að stórir útgerðarrisar og fjárfestar komi með mikið fjármagn inn í mjólkurframleiðsluna og fái síðan beingreiðslur til jafns við aðra? Er réttlætanlegt að ríkisstuðningur renni til eins stærsta útgerðarfélags landsins? Varla getur það fallið undir eitt af markmiðum búvörusamningsins.

Í sjávarútvegi mega fyrirtæki ekki vera nema með 12% af heildarúthlutuðum afla. Er ekki eðlilegt að sömu sjónarmið gildi um mjólkurframleiðslu og að girðingar verði settar til að koma í veg fyrir mikla samþjöppun í greininni? Stuðningur ríkisins við mjólkurframleiðslu í ljósi aukinnar samþjöppunar í greininni og aðkomu stórra fjárfesta á móti hefðbundnum fjölskyldubúsrekstri hlýtur að kalla á endurskoðun á beingreiðslum og að þær gangi til jafns til verksmiðjubúa og annarra framleiðenda. Í dag eru svokallaðar gripagreiðslur misháar í búvörusamningi og sýna fram á að það er hægt að skerða og mismuna í ríkisstyrk. Mikilvægt er að greinin hafi færi á að vaxa og dafna og geti nýtt sér sem best tækninýjungar og að bændur geti bætt vinnuaðstöðu sína og aðbúnað gripanna. Margir bændur hafa lagt í gífurlegar fjárfestingar undanfarin ár í byggingu nútímafjósa þar sem fjárfest hefur verið í dýrum búnaði sem getur lagst á allt að 120 millj. kr. í verðmæti. Til þess að standa undir slíkri fjárfestingu verður framleiðslan að vera, er mér sagt, um 800 þús. lítrar miðað við til dæmis tvo róbóta.

Það sem er mikið áhyggjuefni í dag eru kynslóðaskiptin í greininni og hve erfitt reynist fyrir unga bændur að fóta sig í greininni þar sem gífurlega dýrt er að fjárfesta í greiðslumarki og byggja sig upp og bankarnir bjóða okurvexti og halda mönnum í raun í skuldafjötrum um ókomin ár. Það sýnir enn og aftur að þörf er á því að ríkisbanki eins og Landsbankinn sé gerður að samfélagsbanka sem sinni samfélagslegu og félagslegu hlutverki um land allt.

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra í framhaldi af þessu nokkurra spurninga. Hvert er markmiðið með niðurgreiðslu á framleiðslu á mjólk? Telur ráðherra eðlilegt að ríkisstuðningur í formi beingreiðslna í mjólkurframleiðslu renni til stórra útgerðarfyrirtækja sem reka verksmiðjubú? Í ljósi aukinnar samþjöppunar í greininni er rétt að endurskoða fyrirkomulag niðurgreiðslunnar, t.d. með því að skerða beingreiðslur til mjólkurframleiðslu við ákveðið magn? Þarf að niðurgreiða mjólk sem fer í dýrari vörur eða ætti einungis að niðurgreiða mjólk sem fer í dagvöru eins og til dæmis drykkjarmjólk, smjör, rjóma, skyr, brauðost o.s.frv.? Að lokum: Hvaða breytinga má vænta með endurnýjuðum búvörusamningi sem rennur út í árslok 2016?