145. löggjafarþing — 13. fundur,  24. sept. 2015.

samþjöppun í mjólkurframleiðslu.

[13:41]
Horfa

Hörður Ríkharðsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég fagna þeirri umræðu sem hér er komin af stað um málefni mjólkurframleiðslu sem um leið eru málefni landbúnaðarins í heild og um leið málefni byggðarinnar í landinu.

Hér nefndi ráðherra að til greina kæmi að setja þak á þær greiðslur sem færu á hvert bú eða á greiðslumark hvers bús, enda þótt hann væri ekki kominn það langt að vera með hugmyndir um hvað það ætti að vera. Það er nýtt innlegg í umræðuna og mun þá breyta þeirri vegferð sem við erum í.

Við verðum þá að spyrja okkur: Hvernig hófst sú vegferð og á hvaða vegferð erum við? Kvóti er settur á, síðan eru leyfð viðskipti með hann og svo snarhækkar verð á kvóta og ekki verða til stór og hagkvæm mjólkurbú nema svo og svo miklu sé eytt í að kaupa kvóta. Kvótaverð fór, þegar hæst var, kannski í 410 kr. eða þar um bil.

Það sjá allir að ef ungt fólk ætlar að hasla sér völl í landbúnaði og þarf að byrja á að slá út 40 milljónum til að komast í 100 þús. lítra þá erum við ekki tala um endurnýjun, við erum ekki að tala um hefðbundið íslenskt fjölskyldubú, við erum ekki að tala um þann veruleika sem við bjuggum við.

Það er kannski hluti af umræðunni sem þarf að taka líka. Til hvers hefur þetta leitt, til hvers er þetta að leiða?

Kúabúum hefur fækkað mjög mikið vegna þessa. Þeim mun líka fækka vegna reglugerðar um breytingu á aðbúnaði. Hvar endum við þá? Ef það eru 800 bú í dag, verða þau 200–300 eftir einhvern ákveðinn tíma? Hvernig verður þá staðan í sumum sveitum? Hvaða börn eiga að fara í skólann? Hverjir eiga að syngja í kórunum? Hverjir eiga að smala heiðarnar? Hvernig ætlum við að búa í þessu landi? Á sama tíma vilja neytendur eðlilega fá ódýra vöru og þetta er bara heilmikið og flókið mál.

Ég kalla eftir því að háskólastofnanirnar, sem mest tengjast þessum greinum og landsbyggðinni, sameinist um rannsóknarverkefni og safni reynslu nágrannaþjóðanna og að við tökum miklu dýpri og meiri umræðu, rannsóknir og efnisöflun um það hvaða áhrif kerfið hefur á búsetu og menninguna. Hugtakið bóndi, eins og við höfum þekkt það, held ég að sé að fara frá okkur í mjólkurframleiðslunni.