samþjöppun í mjólkurframleiðslu.
Herra forseti. Ég þakka fyrir ágætar umræður hér og svör hæstv. ráðherra. Það kom fram í svörum hans að hann væri tilbúinn við endurskoðun búvörulagasamningsins að setja eitthvert þak á stuðning. Mér finnst það vera brýnt. Ráðherrann nefndi hér áðan að verksmiðjubú væru ekki til í þeim skilningi á Íslandi, en ég tel að svo sé þegar framleiðsla er komin yfir milljón lítra og spurning hvort það sé eðlilegt að sambærilegur stuðningur sé við þá framleiðendur og aðra. Ég tel líka að það þurfi að horfa til þess með hvaða hætti stuðningur við greinina nýtist best til kynslóðaskipta í greininni og til að búskapur haldist áfram á góðum bújörðum.
Mér finnst mjög áhugavert það sem hv. þm. Hörður Ríkharðsson nefndi hér áðan, sem kannski gleymist í þessari umræðu, hve mikilvægt er að horfa til þess að halda landinu í byggð og hvað gerist ef svo mikil og óheft samþjöppun verður í mjólkuriðnaði að búum fækkar kannski úr 800 í 200. Það yrði gífurleg búsetubreyting hér um allt land og það hefði gríðarlega miklar samfélagslegar afleiðingar.
Við höfum horft upp á hvernig kvótakerfið í sjávarútvegi hefur farið með byggðirnar. Ætlum við að horfa upp á að það sama gerist í sveitum landsins án þess að bregðast við meðan tími er til? Ég held að gífurleg ábyrgð hvíli á herðum hæstv. landbúnaðarráðherra í þessum efnum og það verði að skoða þetta í því ljósi hver heildaráhrifin verða. Ég tel mjög brýnt, eins og hv. þm. Hörður Ríkharðsson nefndi, að gerð verði ítarleg úttekt á þessu af háskólasamfélaginu og sé kominn tími til.
Annars þakka ég hæstv. ráðherra og öðrum fyrir góðar umræður.