145. löggjafarþing — 13. fundur,  24. sept. 2015.

samþjöppun í mjólkurframleiðslu.

[14:03]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Það var einni spurningu ósvarað um það hver væru markmið og tilgangur niðurgreiðslna. Það er svo sem búið að koma fram í máli hv. þm. Haraldar Benediktssonar hvernig þær greiðslur hafa þróast. Tilgangurinn var auðvitað að niðurgreiða ákveðnar vörur til þeirra sem minna hafa milli handa í samfélagi okkar. Í raun er það þannig að örfáar tegundir eru háðar opinberri verðlagningu. Allar aðrar vörur eru á samkeppnismarkaði. Þannig að í raun og veru er verið að halda niðri verði og skýrsla Hagfræðistofnunar sýndi fram á það.

Ég get tekið undir með þeim sem hér hafa talað um að það er mikilvægt fyrir okkur að stuðningur við landbúnaðinn sé líka hugsaður sem stuðningur við byggð í landinu. Það er einnig mikilvægt fyrir okkur að tryggja fjölbreytileika og að hann fái að blómstra, því aðstæður á landinu eru misjafnar, bújarðir misstórar o.s.frv. Það þarf að taka tillit til þess. Þetta eru margir þættir sem þurfa að koma fram í búvörusamningnum. Við þurfum líka að tryggja að þau sóknarfæri sem sannarlega eru fyrir hendi fyrir íslenskan landbúnað í útflutningi verði nýtt. Þannig hef ég ekki sömu áhyggjur og ýmsir þingmenn hér að sú þróun að einhver bú muni stækka haldi áfram eins og verið hefur í 20, 30, 40 ár. Ég hef ekki þær sömu áhyggjur vegna þess að með því að auka framleiðsluna og auka framleiðnina þá styrkjum við líka undirstöðu þess að fólk geti búið á þessum jörðum og haft eðlilega lífsafkomu, auk þess að framleiða vörur og ýta undir hagvöxt og atvinnu í landinu sem ég tel vera mjög jákvætt.

Þannig að ég tel að í þessari búvörusamningslotu sé mikilvægt að forðast kollsteypur. Við getum lært af mistökum annarra. Evrópusambandið er búið að færa kvótaeign, „geringuna“ á kvótanum, yfir á land, að eign verði til þar líka. Það er ekki þangað sem við ætlum að fara. Það er því að ýmsu að hyggja. Ég þakka fyrir umræðuna og málshefjanda fyrir að (Forseti hringir.) hefja hana, tel þetta hafi verið óvenju málefnalegar umræður um málefni landbúnaðarins.