bráðaaðgerðir til að tryggja öllum húsnæði á viðráðanlegum kjörum.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir svarið. Ég bjóst svo sem ekki við því að hún væri endilega sérfræðingur í byggingarreglugerð en það sem mig langar aðeins að kalla fram er að margt í þessum hugmyndum sem ég renndi yfir er áþekkt því sem fram hefur komið í þeim frumvörpum sem ég hef lesið frá hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra. Við erum hér með mikið af háfleygum hugmyndum sem eru allar mjög góðar en það er eitthvað sem hamlar. Kannski er það einmitt þessi strúktúrvandi sem þingmaðurinn nefndi varðandi fjármagnskostnaðinn við það að koma upp húsnæði, það er stóra og alvarlega myndin, og verður þess valdandi að þessi áform verða ekki að veruleika af því að ég held að það skorti ekki vilja.
Það sem við horfum líka fram á er að ef öll þessi áform eiga að koma til framkvæmda þá þarf gríðarlega mikið vinnuafl til að vinna þessa vinnu. Við þurfum fagmenntað fólk, smiði, pípara, alls konar iðnmenntað fólk sem við höfum ekki sjálf og það er líka stórt vandamál. Ég segi að það sé til staðar einhver reglugerðarvandi og einn hluti hans er byggingarreglugerð, en það er líka þessi efnahagslegi strúktúrvandi. Hann felst í því að við erum fámenn og við höfum ekki þann mannkost úr að velja akkúrat núna til að geta ráðist í það sem þarf að gera meðfram hóteluppbyggingu og öðru. Það er líka gríðarlega stór partur af þessu vandamáli vegna þess að sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu er mikið af þeim íbúðum sem annars væru í almennri leigu í leigu til ferðamanna.