styrking leikskóla og fæðingarorlofs.
Virðulegi forseti. Þegar maður hugsar til baka og rifjar upp þróunarsögu leikskóla á Íslandi, nafn-, eðlis- og starfsbreytingar sem þar hafa orðið, þá sjáum við að leikskóli er náttúrlega orðin allt önnur stofnun en hann var í byrjun. Í nútímasamfélagi þurfa og vilja allir vera á vinnumarkaði og hafa til þess jöfn og skýr tækifæri. Til þess að geta eignast börn og jafnframt verið þess aðnjótandi að taka virkan þátt á vinnumarkaði þurfa að vera öruggar stofnanir fyrir hendi þar sem starfsemi er til staðar sem samfélagsleg sátt er um að uppfylli öll möguleg skilyrði um að koma öllum til þroska og mennta. Það er bara þannig sem við lítum á þetta í dag enda þótt lengi hafi eimt eftir af þeim sjónarmiðum að þetta væri ill nauðsyn og geymslustaður. Það er sem betur fer liðin tíð. Hluti af þessu þróunarferli var t.d. þegar starfsheiti þeirra sem starfa á leikskóla fór úr því að vera fóstra yfir í að vera leikskólakennari og ekki höfðu allir skilning á því á sínum tíma í hverju það fælist, fannst þarf óþarfi, fannst það ótímabært og skildu ekki hvað það skipti miklu máli, en vonandi skilja það allir í dag. Þess vegna lítum við á leikskóla sem menntastofnun í dag.
Hvert er framlag þessarar menntastofnunar til mótunar, gildismats, siðferðis og viðhorfa sem eru ríkjandi meðal þegna í samfélagi okkar?
Ég varð var við það hér strax á fyrstu dögum mínum á þingi að það er við margt að glíma í heimi fullorðinna. Til dæmis var ég á fundi í morgun þar sem félagsmálaráðherra talaði um nauðsyn þess að vinna gegn kynbundnu ofbeldi. Hún talaði um jafnréttismál og ýmislegt fleira því tengt. Hvar byrjum við að móta viðhorf og framgöngu einstaklinganna á sviðum sem þessum? Það er strax í uppeldinu. Leikskóli er kjörinn til þess og er sú stofnun sem kennir einstaklingunum jafnrétti og talar gegn mismunun á grundvelli kynferðis, því að beita ofbeldi, hvaða ofbeldi sem er, að sjálfsögðu í gegnum það leikstarf sem fer fram í leikskólum og mætti fara fram í meira mæli í grunnskólum. Þar miðlum við og búum til og byggjum upp það siðferði og það viðhorf hjá öllum nýjum kynslóðum að jafnrétti og lýðræði er grundvallarnálgun í öllum okkar mannlegu athöfnum. Að sjálfsögðu er leikskólinn mikilvægasta stofnunin sem hefur þetta hlutverk á hendi nú þegar. Hann á auðvitað að vera fyrir alla. Ég vil nota tækifærið og gorta svolítið af því að heima í mínu byggðarlagi á Blönduósi getum við tekið á móti öllum börnum sex mánaða og eldri og gerum það ef þess er nokkur kostur og finnst það sjálfsagt.
Ég undirstrika að á leikskólum fer fram grunnmótun. Í gegnum leikinn og það starf sem þar fer fram er hægt að móta gildismat, viðhorf og leggja grunn að því siðferði sem við erum að glíma við hjá fullorðnum að er ekki í lagi. Grunnskólinn þarf að halda því áfram. Það er reyndar ekkert langt síðan það var innleitt í grunnskólastarf að við skyldum hafa markmiðin um jafnrétti, um lýðræði og um mannréttindi að leiðsögn í öllu skólastarfi.
Fyrir sveitarstjórnarkosningarnar fyrir ári síðan hugsaði ég mikið um hvað við gætum gert á sveitarstjórnarstigi til að bæta kjör fólks og hvar væri mesta þörfin. Eftir að hafa velt þessu fyrir mér fram og til baka og eftir að hafa farið í gegnum alls konar greiningar á þessu og jafnvel mína eigin upplifun af því að hafa ekki lengur börn á framfæri, þ.e. börnin mín hafa öll náð 18 ára aldri, eru reyndar komin yfir tvítugt, þá spurði ég mig: Af hverju verður lífið svona miklu léttara fjárhagslega við það? Mér finnst það hafa gerst en ég hef samt ekkert verið með háar tekjur þannig séð. Þá hugsaði ég: Bíddu, við erum með of miklar byrðar á barnafólki. Ég hugsaði: Ég sem sveitarstjórnarmaður að fara í sveitarstjórnarkosningar, hver er leiðin í því? Á ég að fara að rífast við ríkið um skatta og alls konar millifærslur innan skattkerfisins þar sem mál eru leidd út í mismunandi flóknum lausnum sem ég sé ekki fyrir endann á og varpa þannig málinu frá mér sem sveitarstjórnarmanni? Eftir því sem ég hugsaði meira um þetta þá sá ég í hendi mér að allt barnafólk í mínu héraði nýtti leikskólann. Langeinfaldast væri, til þess að bæta lífskjör þess, ef ég gæti lækkað eða fellt niður leikskólagjöldin. Það er ofboðslega einföld aðgerð sem ratar beint í vasa barnafólks. Það er enginn sem þiggur þær greiðslur að fara að kaupa þann kvóta, það land eða þau gæði.
Það er fínt að frumkvæðið komi héðan. Hér þarf lagasetningu. Það þarf viðræður um tekjustofna sveitarfélaga og svo fram eftir götunum. Ég tel að þetta sé markmið sem við ættum að setja okkur og hefja þá vegferð og stefna að því og koma því í framkvæmd að leikskólinn verði til staðar fyrir öll börn. Þá þarf kannski að byrja með eins árs og eldri, foreldrum að kostnaðarlausu. Allir væru þá upplýstir og meðvitaðir um að við ætluðum leikskólanum það hlutverk að miðla þeim grunngildum sem við hefðum fest í námskrár, að allt okkar starf skyldi byggja á jafnrétti, á virðingu fyrir mannréttindum og lýðræði þannig að allt leikskólastarf tæki mið af þeim grunnþáttum.
Þetta er menntamál, uppeldismál, menningarmál og stórt lífskjaramál fyrir það fólk sem er oft einmitt á sama tíma að kaupa sér húsnæði eða hefja lífsferilinn sem er svo þungt fyrir fæti, eins og kom fram í húsnæðisumræðunni hér áðan, aftur og aftur og aftur. Þetta er nátengt því sem er grundvallaratriði fyrir lífskjör ungs fólks. Ég held að þetta sé mjög einföld leið sem nýtist akkúrat þessu fólki.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.