145. löggjafarþing — 13. fundur,  24. sept. 2015.

upplýsinga- og sannleiksskylda ráðherra.

18. mál
[17:04]
Horfa

Flm. (Ásta Guðrún Helgadóttir) (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þær ágætu pælingar sem eiga hér stað.

Í lögum um ráðherraábyrgð er frestur til þess að kæra tiltölulega langur. Það væri sjálfsagt hlutverk stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að ákveða hvenær skuli kæra og hvenær skuli hefja rannsókn.

Varðandi hvaða upplýsingar við erum að tala um þá eru það í raun og veru allar upplýsingar sem þingið biður formlega um hvort heldur sem er í þingsal eða með skýrslubeiðni. Þetta er líka spurning um þessar tvær reglur sem við minntumst á. Fyrri reglan snertir þær upplýsingar sem þingmenn biðja um, til dæmis í ræðustól, og það geta verið hvaða upplýsingar sem er. Það getur þess vegna verið um það hvort himininn sé blár eða ekki. Síðari reglan lýtur að upplýsingum sem ráðherra ber að veita að eigin frumkvæði. Þannig að frumkvæðisskylda ráðherra er líka dregin inn í þetta. Nú veit ég ekki hvort ég sé nógu skýr, en þetta á sem sagt við allar upplýsingabeiðnir sem eru lagðar formlega fram, sama í hvaða formi það er, innan þings eftir formlegu þingferli, og sömuleiðis á þetta við þegar ráðherra vanrækir að gefa þinginu upplýsingar að eigin frumkvæði.