145. löggjafarþing — 14. fundur,  5. okt. 2015.

varamaður tekur þingsæti.

[15:01]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá 4. þm. Norðaust., Steingrími J. Sigfússyni, um að hann geti ekki gegnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Ingibjörg Þórðardóttir.

Kjörbréf Ingibjargar Þórðardóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt, en hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Ingibjörg Þórðardóttir, 4. þm. Norðaust., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]