145. löggjafarþing — 14. fundur,  5. okt. 2015.

tilkynning um skrifleg svör.

[15:03]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hafa fjögur bréf frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við eftirfarandi fyrirspurnum:

Fyrirspurn á þskj. 89, um niðurfærslu húsnæðislána samkvæmt 110%-leiðinni, frá Vigdísi Hauksdóttur, fyrirspurn á þskj. 107, um útsvarstekjur sveitarfélaga, frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni, fyrirspurn á þskj. 108, um skattfrjálsa útgreiðslu séreignarsparnaðar, frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni og fyrirspurn á þskj. 109, um eignir og tekjur landsmanna, frá Árna Páli Árnasyni.