145. löggjafarþing — 14. fundur,  5. okt. 2015.

skipan hæstaréttardómara.

[15:27]
Horfa

innanríkisráðherra (Ólöf Nordal) (S):

Hæstv. forseti. Það er alveg skýrt í lögum um dómstóla að ráðherra skipar þann sem viðkomandi nefnd metur hæfastan. Það var tekið um það alveg sjálfstæð ákvörðun hér á Alþingi að taka eins mikið pólitískt mat út úr slíkum ákvörðunum og hægt væri með því að kveða skýrt á um það í lögum enda hefðu ekki tveir verið metnir jafn hæfir. Væri um það að ræða þyrfti það á endanum að ráðast af niðurstöðu ráðuneytisins hver yrði settur til embættisins.

Síðan er það sú leið sem hv. þingmaður nefnir, að fara með þetta mál fyrir Alþingi, sem er á margan hátt mjög vandmeðfarin aðferð. Málið yrði mjög fljótt að fara þar ofan í mikla pólitíska skurði. Ég held að það sé mjög vandmeðfarið.

Það sem ég hef nefnt út af þessu máli — við skulum gera okkur grein fyrir því að þessi skipan mála hefur verið núna í fimm ár, það er búið að skipa hæstaréttardómara á grundvelli þessara reglna um nokkurra ára skeið — er að mér finnst málið kalla á að við skoðum aftur og betur reglur um skipan dómara. Á þingmálaskrá innanríkisráðuneytisins hefur verið frumvarp til laga um millidómstig. Þar hafa verið hugleiðingar uppi um það hvort einhverjar slíkar reglur ættu að vera í því frumvarpi. Það er líka hægt að taka þetta mál sérstaklega á dagskrá og þá með vísan til þess hvernig skipað er í viðkomandi nefnd með það fyrir augum að hafa ákveðna breidd í því þegar litið er til þeirra sjónarmiða sem hv. þingmaður nefndi og eins þeirra matskenndu atriða sem eru ávallt að meta reynslu og störf manna. Það voru fleiri sem sóttu um, það er líka þriðji umsækjandinn án þess að við þurfum að fara nákvæmlega ofan í það. Mér þykir þetta mál alveg gefa tilefni til þess og ég mun beita mér fyrir því.