notkun dróna.
Virðulegi forseti. Ég kem hingað upp að hluta til til að þakka fyrir umræðuna, að hluta til vegna þess að mér þætti ótækt að enginn pírati tæki þátt í þessari umræðu.
Drónar, eða flygildi, eru vissulega ein af þeim tæknibyltingum sem eiga sér stað núna. Löggjafinn og stjórnvöld eru oft langt eftir á þegar kemur að þróuninni. Mér þykir þetta þó vera í heldur góðum höndum. Ég hlakka til að lesa drögin að þessari reglugerð. Sjónarmiðin þegar kemur að flygildum eru sem betur fer tiltölulega augljós. Það eru persónuverndarsjónarmið, það eru öryggissjónarmið o.s.frv. Hins vegar gerir notkun dróna víðs vegar í samfélaginu þetta miklu flóknara. Það þarf að fara ítarlega yfir það hvernig þetta á nákvæmlega að vera.
Því fagna ég þessari umræðu og treysti því líka að vel verði búið um málið. Ég hef engar sérstakar áhyggjur af því að það verði vont regluverk í kringum þetta. Þó vil ég segja að þegar kemur að nýrri tækni þá hefur fólk tilhneigingu til þess að vera pínulítið hrætt, eðlilega, en ég legg samt til að við setjum ekki reglur nema við sjáum ástæðu til þess. Tækifærin felast þar sem við síst búumst við þeim.