145. löggjafarþing — 14. fundur,  5. okt. 2015.

fjárhagslegur stuðningur við öryrkja í framhaldsskólanámi.

129. mál
[16:27]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Mig langar aðeins að ræða við hæstv. ráðherra um málefni framhaldsskóla og öryrkja. Spurningin snýr að því hvort öryrkjar njóti fjárhagslegs stuðnings af hálfu hins opinbera til að sækja nám í framhaldsskólum, hver hann sé ef svo er og hvort hann eigi bæði við um nám í dagskóla og fjarnám. Eins og við vitum eru kjör öryrkja, margra hverra a.m.k., ekkert til að hrópa húrra yfir. Hér hefur læsi drengja og fleira verið nefnt en við stöndum frammi fyrir því að ungir karlmenn eða ungt fólk flosnar upp úr skóla, fólk sem á við alls konar vandamál að stríða og er meðal annars öryrkjar vegna geðsjúkdóms og treystir sér þar af leiðandi ekki til þess að stunda nám í dagskóla en vill jafnvel reyna við fjarnám. Fjarnám er frekar dýrt, innritunargjöldin eru ekkert sérstaklega dýr en sem dæmi má taka að ef teknar eru átta einingar getur þurft að reiða fram allt að 54 þús. kr., sem er mikið. Það helsta sem hægt er að gera, sem mér er kunnugt um, er að leita á náðir félagsþjónustu eða annarra aðila. Ég er að tala um yngra fólk sem ekki hefur safnað sér stéttarfélagsstuðningi eða öðru slíku.

Við vitum alveg að rannsóknir sýna að skortur á menntun hefur neikvæð áhrif á atvinnuþátttöku fatlaðs fólks. Það hefur sýnt sig að um leið og við menntum fólk betur fer það frekar út á vinnumarkaðinn. Ég held að því miður stöndum við frammi fyrir því að allt of margir einstaklingar sem teljast vera öryrkjar, sem vilja fara aftur í nám og hafa einungis lokið grunnskyldunni, hafa ekki þor eða efnahagslegar forsendur til þess. Það er ástæðan fyrir því að ég spyr um þetta. Svo er það kosturinn við fjarnámið, sem hentar þessu fólki oft miklu betur. Til dæmis telja þeir sem eiga við geðröskun að stríða sig geta stundað námið fyrir framan tölvuna á þeim tíma þegar það hentar þeim í staðinn fyrir að þurfa að setjast á skólabekk og vera jafnvel innan um hóp fólks og geta illa höndlað það, hvort sem það er í formi þess að vakna eða geta ekki eirt lengi o.s.frv. Þetta aftrar mörgum frá því að fara í skóla, en fyrst og fremst er það kostnaðurinn sem fylgir. Kostnaðurinn er vissulega ekki hinn sami í öllum skólum, langt frá því, hann er mjög mismunandi, en þess vegna spyr ég hvort það sé einhver styrkur af hálfu hins opinbera.