störf þingsins.
Herra forseti. Hörmulegt sjóslys varð í sumar þegar báturinn Jón Hákon BA sökk við Aðalvík og með honum fórst einn maður en þrír skipverjar komust lífs af úr bátnum vegna þess að annar bátur, sem var þar í grenndinni, kom þar að og varð þeim til bjargar. Björgunarbátarnir blésu ekki upp og engar skýringar hafa fengist á því hvers vegna björgunarbúnaðurinn virkaði ekki, hvers vegna bátarnir blésu ekki upp.
Ítarleg umfjöllun hefur verið um slysið og rannsókn þess í Kastljósi undanfarið og þar hefur komið fram að Rannsóknarnefnd sjóslysa, sem fer með rannsóknina, ætlar ekki að ná bátnum upp af hafsbotni til að rannsaka orsakir þess og hvers vegna björgunarbúnaðurinn brást. Vestfirskir sjómenn hafa skorað á innanríkisráðherra að tryggja rannsókn málsins og fjármagn til verksins. Samtök sjómanna hafa einnig krafist þess í yfirlýsingu að allt sé gert til að komast að raun um hvað olli þessu hörmulega slysi og að ekki sé hægt að skera úr um það, svo að óyggjandi sé, nema stöðugleiki skipsins verði kannaður með því að ná því upp af hafsbotni. Ég tel að þetta sé það alvarlegt mál að rannsaka verði það til hlítar.
Aðstandendur skipverja hafa gagnrýnt það að ekki sé staðið nógu vel að rannsókninni og að ekki eigi að ná skipsflakinu af hafsbotni. Ég get tekið undir þá gagnrýni og tel einboðið að það verði að rannsaka þetta mál. Öðruvísi er ekki hægt að tryggja öryggi sjófarenda og þeir sem eru núna með björgunarbáta, sem þeir telja að séu skoðaðir, eru ekki öruggir fyrr en kemur í ljós hvað olli þessu slysi. Ég tel mjög mikilvægt, svo að hægt sé að koma í veg fyrir samsvarandi slys, að hæstv. ráðherra tryggi að rannsóknin fari fram og skipsflakinu sé náð upp af hafsbotni svo að hægt sé að fá einhverja niðurstöðu í þetta alvarlega mál.