145. löggjafarþing — 16. fundur,  6. okt. 2015.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

157. mál
[14:51]
Horfa

innanríkisráðherra (Ólöf Nordal) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytta hugtakanotkun í íslenskri löggjöf. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga á málefnasviði sex ráðuneyta. Þá felur frumvarpið í sér brottfall laga um aðstoð til fatlaðra, nr. 24/1962, með síðari breytingum og brottfallsákvæði í tilskipun frá 23. mars 1827.

Framlagning frumvarps þessa er hlutfall af stærra verkefni sem er fullgilding samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Með þingsályktun nr. 1496/2012, um framkvæmdaáætlun um málefni fatlaðs fólks, setti Alþingi fram fjölda verkefna sem koma áttu til framkvæmda fyrir lok árs 2014. Meðal þess var fullgilding samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og endurskoðun íslenskrar þýðingar samningsins. Á grundvelli framkvæmdaáætlunarinnar hefur innanríkisráðuneytið leitt vinnu samstarfsnefndar ráðuneyta með virkri aðkomu sveitarfélaga og hagsmunasamtaka fatlaðs fólks. Verkefni nefndarinnar er að samhæfa aðgerðir til að tryggja að lagaumhverfið verði þannig að viðmið samningsins náist og hægt verði að fullgilda hann. Ráðuneytin hafa farið yfir löggjöf hvert á sínu sviði og greint hvaða lagabreytinga ákvæði samningsins krefjast.

Yfirferðin leiddi meðal annars í ljós að gera þurfti orðalagsbreytingar á fjölda ákvæða til að samræma hana við hugtakanotkun samningsins auk fjölþættra efnislegra breytinga á ákvæðum laga. Með frumvarpi þessu er brugðist við niðurstöðum samstarfsnefndarinnar hvað varðar hugtakanotkun. Hér er lagt til að hugtakanotkun verði breytt til samræmis við þá nálgun sem samningurinn felur í sér að það eru ekki fatlanir sem skilgreina einstaklinga. Dæmi um þetta er að í stað orðsins „fatlaðir“ kemur orðasambandið „fatlað fólk“.

Þá er lagt til að verði frumvarpið að lögum falli úr gildi lög um aðstoð til fatlaðra, nr. 25/1962, með síðari breytingum. Lögin vörðuðu upphaflega lögbundið einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins til að selja eldspýtur, en á grundvelli þeirra var heimilt að setja merki Styrktarsjóðs lamaðra og fatlaðra á eldspýtustokka í fjáröflunarskyni fyrir sjóðinn. Óþarft er að vista leifar úrelts fyrirkomulags í lögum og því er lagt til að lögin verði felld úr gildi.

Jafnframt er lagt til með frumvarpinu að felld verði brott 3. gr. tilskipunar frá 23. mars 1827, um vald biskupa til að veita undanþágur frá fermingartilskipunum. Öllum þeim sem lesa ákvæðið má ljóst vera að þar er á ferðinni mikil tímaskekkja og ekki í samræmi við ákvæði samningsins um réttindi fatlaðs fólks.

Hæstv. forseti. Frumvarp það sem hér er mælt fyrir um er hluti af þeim lagaúrbótum sem ráðast þarf í til að Ísland geti fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks eins og Alþingi hefur þegar ákveðið að gert verði. Að því er varðar stöðu verkefnisins í heild, þá er unnið að því hörðum höndum innan stjórnsýslunnar en því miður hefur þeirri vinnu miðað hægar en vonir stóðu til. Enn er eftir að leysa nokkur álitaefni sem eru á sviðum þriggja ráðuneyta.

Hvað innanríkisráðuneytið snertir náðum við þeim ánægjulega áfanga í vor að breyta lögræðislögunum til samræmis við samninginn og ég þakka Alþingi fyrir liðsinni í þeim efnum á lokadögum þingsins. Verði frumvarp þetta sem hér er mælt fyrir að lögum stendur ekki annað eftir á sviði innanríkisráðuneytisins en að koma á sjálfstæðu eftirliti hér innan lands með framkvæmd samningsins. Það sérstaka verkefni er nauðsynlegt að skoða í víðara samhengi með það að markmiði að finna sjálfstæðu eftirliti með framkvæmd mannréttinda varanlegan stað innan íslenskrar stjórnsýslu. Þar er það verkefni sem hvílir á ráðuneytinu, núna þegar þetta frumvarp er komið til meðferðar þingsins, að ljúka við að klára það úrlausnarefni þannig að þau verkefni sem hvíla beint undir innanríkisráðuneytinu séu öll komin í viðunandi farveg.

Það er hins vegar ekkert launungarmál að undir verksviði annarrra ráðuneyta eru mjög umfangsmikil verkefni sem snúa að þessu máli. Á það ekki síst við verksvið hæstv. félagsmálaráðherra eða undir velferðarráðuneytinu eins og eðlilegt er vegna þessa málaflokks. Ég hygg að þar séu menn mjög meðvitaðir um mikilvægi þess að mjög náið sé unnið að málinu. Ég get líka upplýst þingið um það að við höfum á undanförnum vikum í innanríkisráðuneytinu og velferðarráðuneytinu verið að fara aftur yfir það að við séum að ná þeim vörðum sem nauðsynlegar eru. Það þarf ekki að efast um vilja minn til að tryggja það að við náum þessum áföngum hratt og vel svo við getum fullgilt samninginn sem fyrst.

Þess vegna leyfi ég mér á þessum tímapunkti að leggja til að frumvarpinu verði vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar til þóknanlegrar meðferðar og til 2. umr.