145. löggjafarþing — 16. fundur,  6. okt. 2015.

framtíðargjaldmiðill Íslands.

5. mál
[18:24]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vildi að maður hefði aðeins meiri tíma í þessi andsvör vegna þess að þá eiga skemmtilegustu samtölin sér stað.

Ég tek undir þá bjartsýni sem ég finn í orðum hv. þingmanns um það að hrunið hafi valdið einhverju fjármálalæsi. Vissulega var hér eitthvert fjármálalæsi fyrir hrun. Menn kunnu að margfalda með prósentum og svona, en skildu ekki hvað þeir voru að fara út í, skildu ekki eðli hagkerfisins.

Hér var það andrúmsloft gegnumgangandi í öllu samfélaginu að ekkert gæti farið úrskeiðis. Það var hugsunarhátturinn. Ég var hérna. Ég veit alveg hvernig þetta var. Hrunið er sönnun þess að við erum mjög ung þjóð í fjármálum, skiljum þetta almennt illa og erum mjög mistæk. Við fórum hratt upp og hratt niður og vonandi hratt upp aftur eins og er reyndar tilfellið nú. Vonandi getum við lært af mistökum okkar á sama hraða og við gerum þau. Það mundi maður vona. Ef svo er eigum við kannski einhverja vonarglætu um að ná stöðugleika innan aldarinnar eða svo.

Þegar við lítum á þessar tilteknu tillögur meðfram íslenskri krónu — nú er ég að gefa mér að við þurfum að halda í íslenska krónu, virðulegi forseti — held ég að við þurfum að velja og hafna valkostum í þingsályktunartillögunni.

Hv. þingmaður nefndi til dæmis vexti í fyrra andsvari sínu, hvort við ættum einfaldlega að sætta okkur við háa vexti. Spurningin er kannski ekki sú hvað við ætlum að sætta okkur við, heldur hvort við viljum háa vexti eða hafa miklu verri aðgang að lánum. Meðan við erum með krónu þá verður hér verðbólga og það þýðir að það verða háir vextir og/eða verðtrygging og/eða fjármagnshöft. Þannig að við verðum að velja og hafna hérna. Ég sé enga leið út úr því. Oft eiga Íslendingar erfitt með að horfast í augu við það að þeir geti ekki bæði átt kökuna og borðað hana, en við þurfum að velja og hafna ef við ætlum að halda í krónuna.

Ég legg aftur áherslu á það að ég vona að það sé rétt hjá hv. þingmanni að við séum að læra af hruninu, en við þurfum vissulega að læra meira.