145. löggjafarþing — 17. fundur,  7. okt. 2015.

varamaður tekur þingsæti.

[15:00]
Horfa

Forseti (Þorsteinn B Sæmundsson):

Borist hefur bréf frá 7. þm. Norðaust., Kristjáni L. Möller, um að hann geti ekki gegnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu, Erna Indriðadóttir.

Kjörbréf Ernu Indriðadóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt, en hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Erna Indriðadóttir, 7. þm. Norðaust., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]