ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 9/2015 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 9/2015, um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun, og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um viðurkenningu á og markaðseftirlit með ökutækjum fyrir landbúnað eða skógrækt sem nánar er tilgreint í tillögunni sjálfri.
Reglugerðin kemur í stað eldri gerðar um gerðarviðurkenningu á dráttarvélar fyrir landbúnað eða skógrækt og felur í sér nýja gerðarviðurkenningaraðferð fyrir þessi tæki. Með reglugerðinni er regluverk einfaldað með það fyrir augum að ekki þurfi stöðugt að uppfæra gildandi löggjöf sambandsins um tækniforskriftir. Þess í stað vísar gerðin til gildandi alþjóðlegra staðla og reglna sem eru aðgengilegar almenningi án þess að þær séu birtar innan lagaramma sambandsins.
Innleiðing reglugerðarinnar kallar á lagabreytingar hérlendis og er gert ráð fyrir því að hæstv. innanríkisráðherra leggi fram frumvarp til laga um breytingar á umferðarlögum, nr. 50/1987, á yfirstandandi þingi.
Ekki er gert ráð fyrir að innleiðing reglugerðarinnar hafi mikil áhrif hérlendis enda snýr hún eingöngu að framleiðendum dráttarvéla. Þar sem umrædd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi var hún tekin með stjórnskipulegum fyrirvara. Því er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeirri breytingu á EES-samningnum sem í ákvörðuninni felst svo aflétta megi hinum stjórnskipulega fyrirvara.
Ég legg til, virðulegi forseti, að að lokinni þessari umræðu verði tillögunni vísað til hv. utanríkismálanefndar.