efnahagsleg áhrif stöðugleikaskilyrða.
Virðulegi forseti. Allt er þetta rétt sem hv. þingmaður nefnir að þessu sinni. Það er mikilvægt að viðhafa þetta samráð og það er raunar þegar búið að halda fundi í efnahags- og viðskiptanefnd um þetta mál þar sem fulltrúar Seðlabankans mættu, en það má gjarnan halda fleiri fundi mín vegna. Það er raunar mikilvægt að Seðlabankinn taki þátt í því að skýra afstöðu sína til málsins því honum er eins og hv. þingmaður nefndi falið mikilvægt hlutverk í þessari vinnu.
Jafnframt árétta ég það sem ég sagði áðan og það er ástæða til að taka undir það með hv. þingmanni eins og síðasta fyrirspyrjanda að æskilegt er að sem flestir þingmenn eða að minnsta kosti fulltrúar þingflokkanna í þessu samráðsferli séu upplýstir jafnóðum og einhver tíðindi verða.