145. löggjafarþing — 18. fundur,  8. okt. 2015.

ósk um viðveru heilbrigðisráðherra.

[12:08]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég hlakka mikið til að ræða þetta mál. Ég tel þetta mál mikilvægara en fólk heldur. Ég tek ekki undir það að taka eigi þetta af dagskrá eða fresta fundi, við eigum bara að ræða þetta. Ég hafna því hins vegar, með fullri virðingu fyrir hv. þm. Karli Garðarssyni, að þetta verði sömu ræðurnar og sömu rökin og í fyrra. Vissulega mun fólk tala um þau en ég held að það verði ný rök, það verði nýjar ræður.

Ég vil benda á að umræðan í fyrra skilaði því að sumir skiptu um skoðun, aðrir fóru að efast. Þetta var uppbyggileg umræða og ég vona að ég geti fengið hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans með mér í lið, ef þeir telji þetta vera málþóf sem nú mun hefjast, og gera okkur sem höfum áhuga á málinu þann greiða að taka þátt í umræðunni, hætta á það, til þess að umræðan verði sem ríkust. Ég hef fulla trú á því að hún geti verið mjög góð og gagnleg fyrir alla. Ég geri engar athugasemdir við að þetta sé á dagskrá.

Hvað varðar dagskrárvaldið almennt er erfitt fyrir þingmannamál að komast á dagskrá, það er vandamál sem við glímum öll við.