145. löggjafarþing — 18. fundur,  8. okt. 2015.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

13. mál
[12:52]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Mér endist ekki þessi mínúta til að fara yfir allan misskilninginn og rangfærslurnar sem komu fram í framsögu hv. þingmanns, en ætla mér að fara betur í gegnum það í þeim ræðum sem ég mun flytja á eftir.

Það er eitt sem mig langar til að spyrja hv. þingmann um. Hann talar um að aukið framboð á sölustöðum hafi ekki leitt og leiði ekki endilega til aukinnar neyslu. Mig langar til að benda hv. þingmanni á töflu frá landlæknisembættinu þar sem fram kemur að aukning á hreinum vínanda frá 1988 til dags dato er úr 4,5 lítrum upp í 7,2 lítra. Hvar er þessi söluaukning mest? Hún er ekki hjá ÁTVR, hún er hjá veitingahúsunum. Veitingahúsunum hefur fjölgað alveg gríðarlega og þá segi ég: Hvernig harmónerar þetta við það að þetta aukna aðgengi á veitingahúsum hafi skapað neysluaukninguna að miklu leyti? Hvernig harmónerar það við þá skoðun hv. þingmanns (Forseti hringir.) að þessi gjörð núna þegar útsölustöðum fjölgar fjórfalt muni ekki hafa áhrif á neyslu á mann?