ósk um viðveru heilbrigðisráðherra.
Virðulegi forseti. Mig langar að gera örstutta athugasemd við mælendaskrána. Ég hefði haft gaman af því að sjá fleiri sjálfstæðismenn á henni. Þá er ég ekki að kvarta undan því að þeir sinni ekki skyldum sínum heldur þykir mér þetta einkenni þess sem kemur of oft fyrir á hinu háa Alþingi; meiri hlutinn gerir ráð fyrir því að minni hlutinn sé í málþófi, hæstv. ráðherra er ekki viðstaddur, minni hlutinn kvartar undan því, það lítur út fyrir að vera málþóf og meiri hlutinn tekur ekki undir málþóf.
Það er viðvarandi vandamál að meiri hluti og minni hluti talast ekki saman í málum sem mikill áhugi er á, eins og þessu máli. Mér fannst rétt að gera athugasemd við þetta og hvetja hæstv. ráðherra til að koma hingað á Alþingi og ræða þetta við okkur til þess að við getum stytt umræðuna um viðveru hans og haldið umræðunni áfram á málefnalegum nótum og þá með viðveru óbreyttra þingmanna hv. meiri hluta.